Heimilistíminn - 05.06.1975, Blaðsíða 32

Heimilistíminn - 05.06.1975, Blaðsíða 32
Markmaðurinn Frakkinn Pierre Vannier var ó sínum tíma góður markmaður á knattspyrnuvellinum og það er þeirri reynslu hans að þakka, að Marie-Jeanne er d lífi Þarna féll Marie-Jeanne niður. Af svölunum á sjöundu hæð og bcint í fang Pierres. — Ég var á réttum stað á réttu andar- taki, segir Pierre Vannier. - Mari-Jeanne hefði aldrei lifað af fall af sjöundu hæð, ef ég hefði ekki verið þarna. Það var líka heppilegt, að það var einmitt ég, þvi ég hef verið markmaður og þess vegna van- ur að gripa. Það er ótrúlegt, að þetta slys skuli hafa farið vel. Marie-Jeanne og móðir hennar voru Uti á svölum á sjöundu hæð. Skyndi- lega prilaði fjögurra ára barnið upp á grindverkið og datt niður. — Ég hef aldrei á ævinni verið jafn hrædd, segir móðirin. — Fallið var rúmir tuttugu metrar. Hugsa sér, að Vannier skuli hafa verið þarna fyrir neðan og grip- ið hana. Hún slapp með handleggsbrot og brákaðan fótlegg. Það er kraftaverk. Vannier gleymir þvi aldrei, hvað Marie- Jeanne sagði, meðan þau lágu ennþá á malbikinu fyrir neðan. — Ég missti skó- inn minn. Geturðu náð i hann fyrir mig? — Ég gerði það og setti hann á hana. Móðir telpunnar kallar Vannier hetju, en hann mótmælir þvi. — Þetta kemur hetjuskap ekkert við. Það gerðist svo fljótt, að ég hafði ekki tima til að hugsa mig neitt um. Ég gerði þetta ósjálfrátt til allrar hamingju, annars hefði það ef til vill ekki tekizt svona vel. Marie-Jeanne og Pierre Vannier eru orðin góðir vinir. 32

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.