Heimilistíminn - 23.10.1975, Side 4

Heimilistíminn - 23.10.1975, Side 4
Manneskjan að baki nafninu — 7 Wemher vonBraun Stjórnmál og styrjaldir vöktu ekki áhuga hans. Geimferðir voru draumar hans. En þrátt fyrir það, varð hann einn aðalmaður Hitlers í baráttunni um heimsyfirráð. Líf Wernhers von Braun, allt frá eldflaugakassabílnum í Berlín til tunglflaugarinnar á Kennedyhöfða er eins og ævintýri og því ævintýri er enn ekki lokið ÞAÐ var einn friösælan sumardag árið 1924, að fólk, sem var á gangi á Dýra- garðsstræti i Berlin varð skelfingu lostið, þegar eldspúandi hlutur kom þjótandi eft- ir breiöri gangstéttinni og hafnaði á ljósa- staur með ógnar hávaða. Lögreglan handtók þegar upphafs- mann ólátanna, ljóshærðan tólf ára dreng og lagði hald á leifar hlutarins, sem reyndist vera eldflaugaknúinn kassabíll. En varðstjórinn á lögreglustöðinni hikaði svolitiö við að kalla til föður drengsins. Magnús von Braun barón var ekki aðeins auðugur prússneskur óðalsbóndi, heldur einnig einn af þekktustu stjórnmála- mönnum Weimar-lýöveldisins. Baróninn kom á stundinni og stjórnaði yfirheyrslum yfir syninum. Skýrzla lög- reglunnar stutt og laggóð: sex stórir flug- eldar höfðu verið bundnir aftan á kassa- bflinn og siðan hafði drengur kveikt i þeim á miðri götunni. Billinn hafði ekki látið að neinni stjórn og valdið fótgangendum stórhættu, auk þess að trufla friðinn. Skýring drengsins var álika stutt og lag- góð: hann hafði verið að gera visindalega tilraun með eldflaugadrifinn bil á sama hátt og bilakóngurinn Fritz von Opel. Hvað var athugavert við það? Dómur var kveðinn upp á staðnum. Wernher fékk stofufangelsi heima i höll- inni. Hann notaði timann til að lesa bækur úr miklu bókasafni föður sins m.a. „Ferð ina til tunglsins” eftir Jules Verne, þar sem tunglfari er skotið frá strönd Flórida. Frá þvi andartaki setti Wernher hinn ungi sér það takmark að sigrast á óraviddum geimsins. Leikurinn verður alvara Þegar hann var laus úr stofufangelsinu, hóf hann að gera ótal tilraunir. Eitt sinn lenti eldflaugin i ávaxtakerru úti á götu og annað sinn flaug hún gegn um brauðgerð ogsprakk með miklum hávaða. Baróninn greiddi tjónið og sendi son sinn út á sum- arheimilið i Prússlandi. En Wernher hafði ekki áhuga á landbúnaði. Draumur hans var að verða verkfræðingur og smiða eld- flaugar,sem rutt gætu mönnum veginn út i geiminn. Eftir dvölina i sveitinni var hann i skól- um i mörg ár, ýmist á franska skólanum i Berlin eða heimavistarskólum viða um Þýzkaland. Ahuginn á geimnum óx með degi hverjum og heitasta ósk hans var að fá inngöngu i félag geimáhugamanna, sem litill hópur eldflaugaáhugamanna hafði stofnað i Berlin. Þetta var á bernskuárum flugsinsog menn hristu höf- uðin yfir þessum vitleysingjum. Þegar Wernher von Braun hafði lokið skyldunámi sinu, 17 ára gamall og var kominn aftur til Berlinar til að nema loft- ferðatækni við tækniháskólann, gekk hann þegar i áðurnefnt félag og hóf að gera draum sinn um að sigra geiminn að veruleika. 1 september 1930fékk félagið til umráða eigin eldflaugastöð, 120 hektara mýrlendi i Reinickendorf, Utborg Berlinar. Staður- inn var fyrrverandi birgðastöð þýzka hersins. Aðstæður voru hinar frumstæð- ustu, en ágætar þó. Svæðið var fáfarið og var vel girt. Svo forvitnir áhorfendur trufluðu ekki. Þar voru hrörlegar bygg- ingar, sem nota mátti sem verkstæði. Meö þeim birgðum, sem herinn hafði skilið eftir, var þegar hafist handa um að teikna og smiða fyrstu eldflaugina. Sá á- hugasamasti við það verkefni var Wernh- er von Braun, sem þá var 18 ára. Hann skipti tima sinum jafnt milli eldflauga- stöðvarinnar og skólans, en svaf iðulega i stöðinni. Þaö tók eitt ár, ótal vonbrigði, vasapen-

x

Heimilistíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.