Heimilistíminn - 23.10.1975, Blaðsíða 12
FYRIR nokkrum mánuðum var John
Denver kosinn listamaður ársins ’74 i
Bandarikjunum. Það er heiður, sem
hann á fyllilega skilinn.en sem kemur
ef til vill mörgum Evrópubiium ein-
kennilega fyrir sjónir. En við könn-
umst svo sem við gripinn úr óskalaga-
þáttunum hér heima og i fyrra kom
hann við á vinsældalistum hér austan
hafs með „Anie’s Song” og „Sweet
Surrender” en hann á þaö enn til góða
að verða kallaður toppstjarna hérna
megin. En John Denver er maður se á
skilið að hlustað sé á hann.
Hann byrjaði á að skrifa lög handa
öðrum listamönnum og það þekktasta
þeirra mun vera „Leaving On A Jet
Plane” sem Peter, Paul og Mary
geröu frægt. John Denver hafði ekki
ætlaö sér að ná neinum frama i
skemmtiiðnaðinum, heldur feta i fót-
spor föður sins og gerast flugmaður.
En þegar Bob Dylan hratt af stað þjóð-
lagabylgjunni miklu, breytti John
Denver framtiðaráætlunum sinum.
Hann hafði lengi leikið á gitar og verið
iöinn við það. Hann tók meiraað segja
við af Chad Mitchell i triói hans. í þrjú
ár lék hann þar og samdi jafnframt
handa öðrum. En bráðlega varð hon-
um ljóst, aðhann gat sem bezt komið
lögum sinum sjálfur á framfæri og
fyrsta plata hans var þegar geysivin-
sæl. Still hans er blanda af rokki,
rimnasöng og country & western og
textarnir eru auðskiljanlegir, án þess
aö vera flatir. Hann vekur hrifningu
með einföldum vangaveltum um
hversdagslega hluti.
Fram til þessa hafa komið 12 LP-
plötur og margar litlar. Nýjasta LP-
platan er „An Evening With John Den-
ver” en sú næstsiðasta „Back Home
Again” er fyllilega verð þeirra króna
sem hún kostar.
12