Heimilistíminn - 18.11.1976, Síða 3
Kæri Alvitur
Ef þú ert alvitur, þá vona ég að þú
getir svarað þessu bréfi.
Segjum, að ég hafi allar aðstæður til
að stofna barnaheimili, en væri ekki
lærð fóstra, gæti ég það samt? Ef svo
er, þyrfti ég þá leyfi og hvaða leyfi?
En ef ég mætti það ekki, mætti ég það
þá með iærða fóstru i vinnu, ef ég væri
ekki lærð sjálf?
Og eitt enn. Er hægt að ættleiða börn
frá vanþróuðu löndunum þótt mabur
sé einhleypur, ef svo er, er þá einhver
sérstakur aldur?
Ég þakka allt gott efni f blaðinu, en
þaðmættu vera fleiri fræðandi greinar
um vanþróuð lönd.
GK á Akureyri
Svar:
I Reykjavik eru rekin mörg einka-
barnaheimili og hefur Félagsmála-
stofnun borgarinnar haft eftirlit með
þeim. Sennilega starfa lærðar fóstrur
á þeim flestum, en það er að sjálfsögðu
mjög til bóta, s að svo sé.
Ef þú ert að hugsa um þetta, þá ætt-
irðu að ráðfæra þig við starfsfólk
Félagsmálastofnunarinnar á
Akureyri, þótt ég viti ekki, hvort sama
regla er viðhöfð þar að hafa nokkurt
eftirlit með einkafóstri. Það er að
sjálfsögðu mjög æskilegt fyrir þig, og
raunar nauðsynlegt, að fá blessun ein-
hvers viðurkennds aðila áður en þú
ræðst ú i svona ábyrgðamikið fyrir-
tæki og að taka börn i fóstur.
Það er erfiðara að fá börn til ættleið-
ingar fyrir einhleypinga en hjón, og
þess eru vart dæmi, að einhleypingar
hafi fengið islenzk börn til ættleið-
ingar. E.t.v. er þetta auðveldara með
börn frá þróunarlöndunum, sem mörg
hver eru i mikilli þörf fyrir samástað
og umönnun. Æskilegast er talið, að
fósturforeldrið sé á þeim aldri, að það
gæti átt barn á svipuðum aldri og
fósturbarnið.
Alvitur
Kæri Alvitur!
Okkur langar að fá svör við þessum
spurningum og vonum, að bréfið lendi
ekki i ruslakörfunni.
1. Hvaða menntun þarf til að komast í
snyrtiskóla?
2. Hvað tekur það mörg ár?
3. Hvar er þessi skóli?
4. Hvað iestu úr skriftinni og hvað
heldurðu, að við séum gamlar?
Tvær úr sveitasælunni.
Svör: Það þarf gagnfræðapróf og hafa
náð 18 ára aldri. Námið tekur þrjú ár
hjá snyrtistofu og er bæði verklegt og
bóklegt. Félag islenzkra snyrtisér-
fræðinga stendur siðan fyrír prófi og
veitir réttindi.
Þá er einnig nýbyrjað að kenna snyrt-
ingu i Fjölbrautaskólanum iBreiðholti
og veröur námið þar einnig þrjú ár, að
ég held.
Skriftin bendir til að bréfritari sé
opinn og listrænn, en stafsetningin
gæti verið betri. Þiö eruð um 15 ára.
Alvitur.
Kæri Alvitur.
1. Ef maður fellur i 3. bekk i gagn-
fræðaskóla getur maður þá komizt I
Iðnskóla?
2. Hvað þarf maður að vera til að geta
orðið húsgagnasmiðurog í hvaða skóla
þarf maður að fara?
3. Hvernig passa krabbastelpa og
hrútsstrákur saman? Svo þetta vana-
lega, hvernig er skriftin? Ég þakka
gott efni bæði fyrr og nú.
ST
Svar: Nei, það er nauðsynlegt að
standast miðskólapróf eða 3. bekkjar-
próf. Undanfarið hefur verið krafizt
aðaleinkunnar 5 á gagnfræða- eða
miðskólaprófi til inngöngu i Iðnskól-
ann. Samanlagðar einkunnir i sam-
ræmdum greinum þe islenzku reikn
ingi, ensku og dönsku þurfa að vera 16.
Gagnfræðingar fara siðan í 2. áfanga I
iðnskóla, en nemendur með miðskóla i
1. áfanga. Ekki hefur enn verið ákveð-
ið hvaða reglur muni gilda um nem-
endur með grunnskólapróf.
HUsgagnasmiðinám er f jögur ár hjá
meistara og ýmist tvisvar eða þrisvar
sinnum fjögurra mánaða nám i iðn-
skóla eftirþvihvaða undirbúnir.g nem-
andinn hefur fyrir.
Einnig er hægt að fara i vérknáms-
skóla og iðnskóla og vera þrjú ár á
samningi hjá meistara.
Þriðja leiðin er nú að opnast, en hún
er verknámsskóli og siðan framhalds-
deild og þá er ekki lært hjá meistara.
Krabbastelpa og hrútsstrákur geta
passað illa saman.
Skriftin er allgóð.
........
Meðal efnis í þessu hlaði:
Sumariðl975........................bls. 4
Ljóð............................... — 7
Seinasta ævintýri Arthurs Köstlers .... — 8
Myndireftir Mugg................... — 10
Hann var skemmtilegasti prins Dana .. — 14
Föndurhornið....................... — 18
Lísa í Undralandi.................. — 19
Víkingarnir........................ — 20
Eldhúskrókurinn.................... — 22
Pennavinir.........................— 27
Ég verðskotinn........................ — 28
Rauðu kettirnir —....................... — 32
Hlýttfyrir veturinn..................... — 36
Auk þess krossgáta, Hlæið, Heillastjarnan,
Spéspeki og Alvitur svarar bréfum.
Forsiðumyndin er af Hraunfossum í Borgar-
firði og er eftir Gunnar Andrésson
Ijósmyndara.