Heimilistíminn - 18.11.1976, Blaðsíða 4

Heimilistíminn - 18.11.1976, Blaðsíða 4
Sijjuröur (iudjónsson í leit ad sjálfum ser Haust. Þaö er orðið andkalt um nætur og hrim á efstu tindum, lyng sölnar, blóm visna, sól lækkar, vonir fölna, fólk þreyt- ist. Sumarið sem við hlökkuðum til i vor kom ekki. I endurminningum daganna geymast aðeins dapurlegar myndir grárra úrsvalra regndaga með þykkum nafnlausum himni og hryssingslegum vindum með einstaka heiðum sólskins- stundum inni á milli. Brátt mun snær fjúka, sær rjúka, svell frjósa, land kólna, dag stytta, nótt lengjast. Mörgum reynist eflaust erfitt að þreyja komandi vetur, fjörefnalausir og mergsognir af enda- lausum rigningadögum, sem manni finnst stundum að hafi staðið uppstyttulaust eins lengi og minnið nemur. En ef við leitum vel i reynslu okkar i þessu sót- svarta skýjakafi finnum viö áreiðanlega atburði, einhver stemmningafull og lyft- andi tiðindi, er hjálpa okkur til að sigrast á kulda og myrkri skammdegisins. Upp i vitund mina leiftrar litið ævintýri eins og ljósbrot á úfnum vatnsfleti. Það er allt I þoku og mistri, en eftir situr seiðmögnuð tilfinning, dálitið dulúðug kennd, sem bregður fölleitri birtu yfir grámósku þessara þykku daga. Upphaf þessara hugljúfu sögu má i raun réttri rekja til þungbúins föstudags snemma i júnimánuði, en þá þegar hafði ég ákveðið að ferðast norður i land um sumarið á slóðir, þar sem ég hef aldrei áður komið. Ég var á leið heim til min eftir eitthvert tilgangslaust ráp um bæinn og rölti Austurstræti á meðan ég beið eftir vagni. Allt i einu beindist athygli min að bekk undir (Jtvegsbankanum. Og sam- stundis hvolfdist yfir mig einkennileg til- finning sem ég hef aðeins einu sinni áður lifað. Það var lika á föstudegi. En það var kaldan og harðan haustdag. Á bekknum sat ung stúlka, sem horfði beint framan i mig. Hún laust mig sem elding. Ég ein- blindi frá mér numinn af undrun og fögn- uði á þessa litlu kynlegu mannveru, en aörir vegfarendur hurfu út i fjarlægðina eins og skuggar undan risandi sól. Hún horfði á mig þegjandi. Svona stóð ég og þarna sat hún og störðum þögul hvort á annað unz ég gekk dapur i huga og hryggur i hjarta i strætó. Ég hugsaði um það að þennan undarlega vegfarenda sæji ég nú I fyrsta og siöasta sinn. Það sem eftir var dags flögraði þessi sýn fyrir augum mér. Hún fyllti út myndflöt hug- ans. Þessi fáu augnablik höfðu tendrað i sál minni daufan bjarma af löngu liðnum sólardögum, vakið i hjarta mér óljósar kenndir um gleði og birtu sem, einhvern tima hafði logað i brjósti mér. Um kvöldið fór ég á skemmtistað. Þar gerðist auðvitað ekkert. En er ég kom út úr húsinu að dansleik loknum mætti aug- um minum andlit sem brosti vingjarnlega til min. 1 sömu andrá hrópaöi ég glaöur og hissa en hún hvíslaði feimnislega: „Þú”! „Hvað gerir þú i sumar?” spurði ég. „Ég fer norður i land á morgun að vinna i fiski.” „Ó!” hrópaði ég vonsvikinn. „Strax á morgun.” Hún hikaði andartak en sagði svo glaö- lega: „Við skulum skrifast á.” Og við gáfum hvort 'öðru nafn og heimilisfang. Viö gengum út að Tjörn og horfðum á vatnið og lifið á vatninu og sól- in kom upp yfir Esju. Svo kvöddumst við. Dagarnir liðu. Ég fékk ekki bréf og skrifaöi engin bréf. En loks hélt ég af staö til fyrirheitna landsins. Þar var hver dagur bjartur og hlýr. Það voru mildir vindar, angan af skógi, ilmur úr grasi, kátir lækir og syngjandi rindar, kvak i fuglum og flugnasveimur. Og hafið var blátt og fimmtog dularfullt. Svo eitt kvöld i þungbúnu veðri og dálitlum regnhragl- anda hélt ég áleiðis til þorpsins hennar i skröltandi jeppa. Það voru einu stundirn- ar sem ský dró fyrir sólu á allri minni reisu. Ég hélt rakleiðis að heimili hennar er ég kom á áfangastað og hringdi bjöll- unni með mikilli eftirvæntingu. En hún var ekki heima. Hún var einhvers staðar úti i bæ hjá kunningjum sinum. Enginn vissi hvar. Mér dimmdi fyrir augum. Ég skjögraði ráðalaus niður tröppurnar og út á götu. f sama bili kom hún brosandi og fagnandi á móti mér. Hún stritaði i fiski frá klukkan átta á morgnana til klukkan fimm á kvöldin og oft lengur. Það er islenzkt mannlif. Ég hitti hana i hverjum matar- og kaffitima. öðrum stundum dagsins eyddi ég á rölti um bæinn og umhverfi hans. Það er vina- legur bær. Og só!in flæddi hlý og mild yfir bláar. og tæran f jörðinn og ég leitaöi uppi gróskumiklar smálautir milli húsanna og vingjarnleg gil með fjörugum árspræn- um. Þar sat ég glaöur og horföi á himin- inn. Kvöldin voru.kyrr og björt. Fjöllin spegluðust I sjónum og reykirnir á húsun- um stigu þráðbeint upp I loftið i átt til hærri veralda. Við lásum fólk og gömul hús. Við klifum brekkur og teyguðum svala komandi nætur. Við leiddumst með fjörunni og hlustuöum á raul öldunnar viö aldna steina. Við fórum út aö leirum þar sem áin rennur út i fjöröinn og skoðuðum ástalff fugla og blóma. Og við gengum aö háum sjávarhömrum i útjaðri þorpsins og horfðum á þokuna læðast inn fjarö- armynnið. Þokan gerir hið smáa stórt og hiö stóra smátt eins og mannlifið. Við töl- uðum fátt. Það var ekkert að segja. För min um Norðurland var yndisleg. En þessir fáu dagar i afskekktu sjávar- þorpi við tshafið voru helgustu stundir þessara sólriku daga. En nú eru þeir liðn- ir og koma aldrei til baka. Og þeir sem einu sinni kveöjast hittast aldrei meir. Hin daglega styrjöld lifsbaráttunnar hefursnúiö þessum endurminningum upp i hillingar sem aöeins birtast stund og stund I óljósum draumi. Það er að koma vetur. En nú I nótt er ég skrifa þessar linur er skir -himinn og miklir kraftar i loftinu. í austri blikar Venus ein systra sinna en i suðvestri brosir máninn sem veröur fullur klukkan 5.28 i nótt. Og undrið mikla — lifið sjálft — mun halda áfram að veita okkur gjafir sinar, hverj- um og einum eins rikulega og hann er fær um að þiggja. Upphaf visögu

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.