Heimilistíminn - 18.11.1976, Qupperneq 8
Enn einu sinni hefur Arthur Köstler
vakið storm og hneykslun. Nú heldur
hann því fram í nýrri bók, Þrettándu
ættkvíslinni, að Gyðingar séu ekki
komnir út af Abraham, ísak og Jakobi
og öðrum persónum biblíunnar, heldur
þjóðflokki af tyrkneskum uppruna,
er leið undir lok á tíundu öld
Fáir rithöfundar eiga jafneinkenni-
legan feril og Arthur Köstler. Fáir hafa
sveiflazt sem hann frá einum pólnum til
annars. Þrisvar á ævi sinni hefur hann
skipt um ritmál, þegnréttindi hefur hann
haft i þremur rikjum, og biisetu hefur
hann haft i sex Norðurálfulöndum. Rit-
störf hans hafa verið enn fjölbreytilegri.
Hann hóf feril sinn sem erlendur fregnrit-
ari, sneri sér siðan að þvi að skrifa um
frægðarfólk samtiðar sinnar, mismun-
andi merkilegt, og gerðist eftir það skáld-
sagnahöfundur. Þegar hann hafði skrifað
nokkrar skáldsögur, sneri hann sér að
stjórnmálaskrifum. Þessu næst kom
sjálfsævisaga, rit um heimspeki, sálfræði
og náttúrufræði og 1 oks enn skáldsaga.
Leikrithefur hann lika skrifað og gefið út
ritgerðásöfn og ótal margf annað. Það
eínkennir allt hans lif, að gegn þvi, sem
hann fylgdi fastast um skeið hefur hann
siðan snúizt af engu minni hörku. Af póli-
tiskum orsökum hefur bók hans, Myrkri
um miðjan dag, verið mest á lofti haldið.
Arthur Köstler fæddist 1 Ungverjalandi
1905, Gyðingur að ætt. Ungur var hann i
hópi þeirra, sem vildi, að Gyðingar sam-
löguðust umhverfi sinu, en gerðist fljót-
lega ákafur Sionisti, og i samræmi við það
fluttist hann frá Vinarborg til Palestinu,
er þá hét svo. Hann var enn um það bil
hálfþritugur, er hann sneri aftur til
Evrópu, og árið 1931 hætti hann störfum
hjá borgaralegu blaði og fór að vinna með
kommúnistum. Seinna á þessum sama
áratugi upp úr Moskvuréttarhöidunum,
snerist hann öndverður gegn kommúnist-
um, svo sem alkunna er, en samdi seinna
flokk greina, þar sem boðaður var lýð-
ræðislegur sósialismi. En ekki leið á löngu
áður en hann sneri enn við blaðinu og átti
þá ekki annað en hæðnisorð um jafnaðar-
menn — „Þessa heimilislausu vinstri-
menn”.
Það fyllir myndina, að Arthur Köstler
hefur verið þrikvæntur, og á vissum
skeiðum ævi sinnar vakið talsverðan
storm hneykslunar meö atferli sinu. Sið-
ustu tiuárinhefurhannþólifað tiltölulega
kyrrlátu lifi i gamalli höll i Englandi.
En nú hefur þessum manni, rúmlega
sjötugum að aldri, fundizt timi til þess
kominn að vekja storm að nyju, likt og
hann gerði iðulega um fjögurra áratuga
skeið. Hann hefur skrifað bók, sem hann
nefnir Þrettándu ættkvislina — Kazar-
veldið og arfur þess. Þar kemur hann
fram sem sagnfræðingur. óþolitimæöi
aldraðs manns hefur þó komið i veg fyrir
sjálfstætt rannsóknarstarf, áður en hann
8