Heimilistíminn - 18.11.1976, Blaðsíða 17
Tveim mánuðum siðar fæddist frænka
hans Margrét.
Ingólfur átti eiginlega að verða Friðrik
konungur X, en örlögin og danska
þjóðþingið höguðu þvi á annan hátt.
Þegar Margrét prinsessa varð 18 ára 1958
átti Knútur prins ekki lengur sæti á ráð-
herrafundum,. en hélt áfram að gegna
embætti þjóðhöfðingja þegar þörf var á.
Jafnframt fékk sonur hans, Ingólfur, sér-
stakan lifeyri og skaöabælur. Þessum lif
eyri heldur hann enn sem greifi af Rosen-
borg.
Knútur prins dró aldrei dul á, að það
urðu honum vonbrigði að sonur hans
skyldi verða af konungdóminum.
Knútur prins, kona hans, börn og
tengdadætur eru öll að sögn viðkunnan-
legt fólk, skemmtilegt og hreint og beint i
framkomu.
Og svo var það þegar átti að útnefna
hann heiðursindiánahöfðingja og hann
fékk heljarmikið fjaðraskrúð sent til að
bera á höfðinu við athöfnina.
— Nú þori ég ekki inn i dúfnaskýlið þeg-
ar ég kem heim, sagði erfðaprinsinn, en
hann var mjög hrifinn af bréfdúfum.
Svo var það þegar Knútur prins stóð
einn á Kastrupflugvelli og veifaði i
kveðjuskyni til allrar konungsfjölskyld-
unnar, sem var að fara i veizlu til Aþenu.
— Þegar ég var drengur, var Knútur
prins vanur að segja, kom Kjeldsen töfra-
maijur i höllina til afa mins. Hann gerði
töfrabrögð fyrir okkur bræðurna og
kenndi okkur sum þeirra. Hann var stór-
kostlegur!
Það var erfðaprinsinn lika. Hann gat
töfrað fram hluti og látið þá hverfa aftur,
án þess að þeir, sem sátu og spjölluðu við
hann, sæju hvernig hann fór að þvi.
— Einu sinni töfraði ég burt kórónu,
sagði hann kiminn, en mér hefur ekki
tekizt að töfra hana til baka!
Eftirlætisdrykkur prinsins var Hof-
bjór, meðalsterk öltegund frá Carlsberg.
Eitt sinn þegar hann heimsótti Tuborg
verksmiðjurnar var honum færð heil
tunna af Tuborg bjór, frá þessum keppi-
nautum Carlsberg verksmiðjanna.
Þegar yðar konunglega hátign hefúr
bragðað á þessu, drekkið þér aldrei fram-
ar neitt annað, sagði forstjórinn.
— Nú, settuð þið eitur i það? spurði
erfðaprinsinn.
Það eru margar skemmtilegar sögur af
Knúti prins. Einu sinni var hann á jóla-
tónleikum i ráðhúsinu i Lyngby. Hann var
á tali við Margréti prinsessu þegar
borgarstjórinn birtist.
— Heyrið mig nú, borgarstjóri, sagði
erfðaprinsinn, og tók hann afsiðis. Hafið
þér heyrt þessa sögu? Herrann hafði
fengið spurnir af þvi, að 80% af öllum
eiginmönnum væru konum sinum ótrúir.
Þá skrifaði hann hinum 20% eiginmann-
anna. Vitið þér hvað hann skrifaði þeim?
— Nei, svaraði borgarstjórinn.
— Nú,nú, sagði erfðaprinsinn undir-
furðulegur á svip. Mig grunaði lika að þér
væruö ekki einn af þeim, sem hann skrif-
aði!
Knútur prins og Caroline Mathilde á leið 1 veizlu I Kristjánsborgarhöll. Knútur gegndi
stundum skyldum þjóðhöfðingja.
Þegar siðasta flugvélin var farin, sagði
erfðaprinsinn:
— Jahá, nú er ég einn eftir.
Hann sneri sér að forsætisráðherran-
— Hvað hefðuð þið eiginlega tekið til
bragðs ef ég hefði lika verið boðinn.
Glaður hláturinn i Sorgenfrihöll er
hljóðnaður, en endurminningin um Knút
prins lifir enn. Hans sæti er vandfyllt.
^ Skír prins