Heimilistíminn - 18.11.1976, Blaðsíða 18
Föndurhornið
Gauti Hannesson:
Blóma-
potta-
hlíf
Það sem hafa þarf við
höndina:
1. Meðalstóran jurtapott, helzt
úr harðplasti.
2. Gömul dagblöð.
3. Brúnan límpappír.
4. Vaselín eða feitt krem.
5. Veggfóðurslím (duft).
6. Skæri.
Allt þetta er látið á útbreitt
dagblað.
Það sem gera þarf :
1. Berið vaselín á úthliðar
jurtapottsins.
2. Klippið niður nokkur
dagblöð í ræmur.
3. Þrýstið þessum ræmum á
pottinn, svo að þær toili við
vaselínið.
4. Notið brúna límpappírinn í
næsta lag utanum pottinn.
5. Búið til lítið eitt af vegg-
fóðurslími, (vatn og límduft),
svo sem einn kaffibolla, og
limið síðan fleiri lög, kannski
7-8, af dagb.laðapappir utanum
pottinn.
6. Látið þorna í nokkra daga
við stofuhita. Plastpotturinn á
þá að losna sjálfkrafa innanúr
pappírspottinum.
7. Skerið nokkuð stórt gat í
botninn á pappírspottinum.
Málið hann utan með skærum
Hörpusilki litum og lakkið yf ir
með Leifturlakki.
7 8