Heimilistíminn - 18.11.1976, Síða 24
Sellerisúpa
300-400 gr selleri
1 lítri vatn
2- 3 matsk. sjávarsalt
1 1/2 matsk. smjör
2 matsk. hveiti
1 dl rjómi
súpukraftur
söxuð steinselja
Skerið selleriið i ræmur og sjóðið i vatni
þar til meyrt, bætið saltinu i. Bakið upp
smjör og hveiti og hellið soðinu i ásamt
rifnu selleriinu. Bætið i rjóma og súpu-
krafti. Stráið steinselju yfir. Uppskriftin
er fyrir fjóra.
Sojaspaghetti með gómsætri
sósu
250 gr sojaspaghetti (mun ekki fást hér i
verzlunum, og þvi verður aö notast við
venjulegt spaghetti, þótt það sé ekki eins
hollt, þar sem það er meira unnið og hefur
þvi glatað hollum efnum úr kornhýðinu)
Sósan:
3- 4 laukar
1/2 kg tómatar (ódýrara að kaupa niður-
soðna)
100 gr sveppir
2 gulrætur
100 gr mais eða grænar baunir
100 gr saxað grænkál eða spinat
vatn
sjávarsalt
1 lárviðarlauf
1 tesk. hvitlauksduft
1 tesk paprika
2-3 matsk. tómatsósa
Skerið lauk og tómata i geira, sveppir og
gulræturi sneiðar. Setjið allt grænmetið i
skaftpott og vatn svo rétt fljóti yfir það.
Sjóðið i um 30 minútur ásamt salti og lár-
viðarlaufi. Bætið f kryddi og tómatsósu.
Sjóðið spaghettiið eins og segir fyrir á
pakkanum, siið vatnið af og berið fram
með sósunni. Uppskriftin er fyrir fjóra.
Bakaðar gulrófur með osti
750 gr rófur
2 púrrur
salt
1 1/2 matsk smjör
1 1/2 matsk hveiti
4- 5 dl soð
1 dl rjómi
1 dl rifinn ostur
Skrælið rófurnar og sneiðið púrruna.
Sjóðið i saltvatni en púrran þarf minni
suðu. Bakið upp smjör og hveiti og bætið
soðinu og rjóma i. Bætið púrrusneiðunum
i. Leggið rófubitana i smurt eldfast mót,
helliö jafningnum yfir og stráið þar yfir
rifnum osti. Bakið við 225 gr. þar til gul-
brúnt. Borið fram með hýðisgrjónum eða
kartöflum og salati.
Lísa í Undralandi frh. af bls. 19
berja”, sagði þjónninn. „í fyrsta lagi er ég
sömu megin hurðarinnar og þú, og i öðru lagi
er hávaðinn svo mikill inni, að það heyrist ekki
til þin”. Það var satt, hávaðinn var ótrúlega
mikill. Það heyrðust stanzlausir hnerrar,
ámátleg væl og öðru hvoru dynkir og glamur,
eins og allt ætlaði um koll að keyra.
„Hvernig á ég að komast inn, ef mér leyfist
að spyrja”, sagði Lisa.
Þjónninn anzaði ekki spurningunni, en sagði:
„Það væri ef til vill eitthvert vit i að berja, ef
hurðin væri á milli okkar. Ef þú værir til dæmis
fyrir innan, þá gætirðu barið og þá myndi ég
hleypa þér út”.
Þjónninn starði upp i loftið, á meðan hann
sagði þetta, og Lisu fannst það frámunaleg
ókurteisi. „En sennilega getur hann ekki að
þessu gert, þvi að augun eru svo fjarska ofar-
lega i höfðinu”, hugsaði hún. „En hann gæti
samt að minnsta kosti svarað spurningum
minum”.
„Hvernig á ég að komast inn?” endurtók
hún.
24