Heimilistíminn - 18.11.1976, Page 28
Ég verð skotinn
Leikir og störf —
Bernskuminningar úr Land-
broti nefnist bók eftir
Þórarin Helgason, sem Al-
menna bókafélagið gefur
út. Höfundurinn, sem nú er
roskinn maður, fæddur árið
1900, er þjóðkunnur fyrir
fyrri bækur sínar, svo sem
Lárus á Klaustri, sem kom
út árið 1957, Frá heiði til
hafs, 1971, og skáldsöguna
Una danska, sem kom út í
fyrra.
Þórarinn rifjar í þessari
nýju bók upp bernsku sina,
leiki hennar og störf, og þá
ekki sízt bernskureynslu,
Segja má, að barnaskólinn tæki
engum breytingum öll mín skóla-
ár. Kennarinn var hinn sami og
kennslutilhögun áþekk, nema
hvað námsefnið þyngdist, eftir
því sem þroski minn varð meiri.
En þó varð mikil breyting á
sálarlífi mínu, þegar ég var á
tólfta ári. Tel ég skylt, að sá kaf li
komi í Ijós sem annað súrt eða
sætt, er fyrr getur og eftir er að
segja frá í minningum þessum.
Til þess eru þær ritaðar að vera
spegilmynd horfinnar tíðar og
má þá ekki draga undan neitt ef t-
ir geðþótta. Allar minningar
manna eru bundnar við einstakl-
inga að meira eða minna leyti.
Vera má aðsumt sé af brigðilegt í
bernskubrekum mínum, sem
aðrir eiga ekki í f ari sínu. Það er
önnur saga og ekki á minu færi
að koma til móts við.
Veturinn 1912 gerðist það, að ég
varð skotinn í einni skólasystur
minr.i. Hún var nokkru eldri en
ég. Þetta vissi ég, að tíðarandinn
fordæmdi harðlega. Krakkar
máttu ekki unnast eins og full-
orðið fólk. Þó duldist víst ekki
sem er á margan hátt
óvenjuleg. Auk bernsku-
minninga er í bókinni mikill
fróðleikur um þjóðhætti í
sveitum á bernskuárum
höfundar. Hér á eftir fer
stuttur kafli úr síðari hluta
bókarinnar.