Heimilistíminn - 25.11.1976, Page 19
sem eiga að heita höfuð sköpunarverks-
ins?”
Ég held ég hafi ekki svarað þessu, enda
virtist mér Ingi ekki búast við neinu.
Hann sathugsi, augnaráðið innhverft. Svo
blossaði upp i honum lifsgleðin, og nú
sungum við saman. Ég bið að heilsa og 0,
blessuð vertu sumarsól, en siðan spratt
hann á fætur, stóð nokkur andrtök þegj-
andi, en sagði siöan:
„Nú ætla ég að syngja fyrir þig nýtt lag
eftir mig.”
Svo rétti hann úr út frá sér báðar hend-
ur og sneri lófunum upp, eins og hann
vildi vera sem bezt við þvi búinn að
veita einhverju viðtöku, sem ofan að
kæmi. Og nú söng hann I svanaliki lyftist
moldin hæst. Og hann söng ekki aðeins
fyrstu visu hins dásamlega ljóðs, heldur
lika þá siðustu, og hana söng hann af
heitri tilfinningu:
Hve sælt, hve sælt að liða um hvolfin
hcið:
með hreina, sterka tóna — eða öngva,
að knýja fjarri öllum stolta strengi,
að stefna hæst og syngja bezt I deyð,
að hefja rödd, sem á að óma lengi
i annars minni, þó hún deyi um leið
Er nokkur æðri aðall hér á jörð
en eiga sjón út yfir hringinn þröngva
og vekja, knýja hópsins blindu hjörð
til hærra lifs — til ódauðlegra söngva.
Að sönglokum luktust lófar hans, votturl
af brosi lék um varirnar, en af augunum|
hrukku tár.
Þannig sá ég hann, þegar ég heyrði látp
hans aðeins aldarfjórðungi siöar er við|
lifðum saman hinar ógleymanlegu stund-
ir ofar allri byggð i Seyðisfirði.
Gömul teikning af Hagalin eftir Halldór Pétursson
Það er siðfágun að lýsa öðrum eins og
þeir sjálfir kjósa aö sjá sig.
*
Þvi meira sem mennirnir eldast þvi
erfiöara veitist þeim að brosa fyrir
framan búr apanna I dýragarðinum.
*
Skuidheimtumenn hafa betra minni en
skuldunautar.
*
Þótt seld séu sæti á sviöinu á tónleikum.
fylgir þviekki að gestirnir fái að sitja i
kjöltu hljómsveitarstjórans.
*
Jafnstraumur og víxlstraumur eru
betri en jafn straumur af víxlum.
*
Frestaðu þessu heldur til morguns...
þú ertbúin að gera nógu mörg mistök i
dag.
Mörg glcðiefni hverfa i skuggann af
þvi að þau kosta ekkert.
Reynsian eykur þekkingu okkar, en
þar með er ekki sagt að viö gerum
færri vitleysur.
*
Þú verður aldrei ræðuskörungur ef þú
þegir alltaf.
19