Heimilistíminn - 03.03.1977, Blaðsíða 4
Tage Danielsson:
Sagan um stúlkuna sem
EINU SINNI VAR stúlka sem
vann i postulínsverksmiöju og
þess vegna var hún kölluð
Fajáns Fajans var glaðvær og
þráði mjög allt það spennandi,
sem hún átti eftir að kynnast í
lifinu. Hún var 17 ára og ógift.
Fajans vann í postulínsverk-
smiðju frá átta á morgnana til
fjögur á kvöldin. Á hverjum
morgni kl. sjö fór hún á fætur,
burstaði tennur, drakk glas af
greipsafa og las myndablað.
Hún gat setið tímum saman og
virt fyrir sér fallegu þátttak-
endurna i fegurðarkeppninni
Ungfrú Svíþjóð.
„Ef ég nú væri ungfrú Sví-
þjóð," hugsaði Fajans. „Það
færi eitthvað annað en að
vinna í postulínsverksmiðju."
★
I næsta skipti sem haldin var
fegurðarkeppni sendi Fajans
mynd af sér. (I þetta sinn var
ekki verið að kjósa Ungfrú
Svíþjóð heldur Ungfrú Ein-
hleyp). Fajans fékk ókeypis
ferð á fund keppnisstjórnar-
innar til að sýna sig og láta
taka af sér mál og svo var hún
valin til að taka þátt i keppn-
inni. Og þegar sá tími kom var
það Fajans, sem var valin
Ungfrú Einhleyp og það var
engin f urða því hún var eins og
falleg lítil postulínsdúkka.
Fajans gegndi skyldum sin-
um sem fegurðardrottning á
góðgerðasamkomum og í
veizlum frá því kl. átta á
Fajans var glaðvær og þráíi mjög allt spennandi. morgnana til fimm é kvöldin