Heimilistíminn - 17.03.1977, Side 7
Rússnesk ljóðskáld
laða til sín
þúsundir áheyrenda
Ljóöalestur er vinsæll I Sovétrikjunum.
Þessar vinsældir hófust fyrir um áratug,
og var þá gengiö rösklega fram i fyrir-
brigöinu, en nú er færra um ljóöakvöldin.
Enn viröast vinsældir þeirra þó þær
sömu, ef marka má nyiiöiö ljóöakvöld,
sem haldiö var þar eystra. Hvorki meira
né minna en 10 þúsund manns komu til aö
hlutsta á nútlmaskáld eins og Bella
Akhmaddulina, Andrei Voznesenski, Yev-
geni Yevtushenko og Boulat Okudzhava
lesa skáldskap sinn.
Okudzhava þessi er oft nefndur Bob
Dylan Sovétrlkjanna. Hann hefur lesiö og
sungiö inn á margar plötur, sem sumar
hverjar hafa selzt vel á Vesturlöndum.
Ytvtushenko er einnig þekkt nafn á
Vesturlöndum, þar sem honum var eitt
sinn fagnaö sem uppreisnarskáldinu úr
austri og vann hann sér þá heimsfrægö.
Nýlega var ljóö eftir hann birt I tlmariti
eystra og hljóp sala tímaritsins þegar á
þriöju milljón eintaka. Fyrir skömmu
sneri Yevutshenko heim úr tveggja
mánaöa upplestraferö um England, og er
nú ekki annaö aö sjá en frægö hans standi
föstum fótum bæöi austan járntjalds og
vestan.
TIu þúsund áheyrend-
ur komu til aö hlusta á
skáldin lesa upp ljóö
sin.
Yevtushenko er
vinsæll bæöi austan
járntjalds og vestan.