Heimilistíminn - 17.03.1977, Qupperneq 13
Nú er svo komiö, aö þaö er fljótlegra aö telja upp þá
staði i heiminum, þar sem ABBA er óþekkt fyrirbæri, en
hina, þar sem allir þekkja ABBA. Nýlega komu fjór-
menningarnir frá Astraliu, þar sem þau geröu stormandi
lukku eins og alls staðar annars staöar. Japanir eiga von á
þeim til sin innan skamms og ekki er aö efa, aö þeim
veröur vel tekiö þar, þvi ekki eru dæmi slikra vinsælda
siöan Bitalarnir voru upp á sitt bezta.
Þetta byrjaöi allt saman, þegar ABBA fór meö sigur af
hólmi i Grand Prix-söngvakeppninni i Brighton áriö 1974,
en sigurlagið var Waterloo. Þau höfðu áður veriö velþekkt
heima I Sviþjóö, en gengiö illa aö komast inn á alþjóöiega
markaöinn. Waterloo opnaöi þeim þar allar dyr og um-
boösmaöurinn, Stikkan Anderson var ekki seinn á sér aö
nota tækifærið. ABBA sigraöi heiminn bráðlega meö lög-
um sem ganga beint irtn i hjarta fólks. Hver platan rak
aðra og flestar þeirra eiga þaö sameiginlegt, aö hafa
hafnaö á vinsældalistum um allan heim.
Fjórmenningarnir i ABBA — Agneta Faltskog, Björn
Ulvæus, Benny Anderson og Anni-Frid Lyngstad, voru öll
þekkt sem sólóistar áöur en ABBA varö til áriö 1972. Þá
má geta þess, aö Benny var á sinum tima i Hep Stars og
Björn i Hootenanny Singers, sem hvoru tveggja voru
þekktar hljómsveitir lit fyrir sænsku landamærin.
Sem sagt: Abba eru enn aö framleiöa fyrir vinsældalista
heimsins og við höfum áreiöanlega ekki heyrt þaö siðasta
til þeirra.
Popp-kornið