Heimilistíminn - 21.04.1977, Blaðsíða 36
Fallegt útsaumað
Petta versti getur gjörbreytt búningi þinum á
einu augabragði Pú getur saumað það sjálf.
Þetta vesti gctur þú annað hvort
snifiið eftir einhverri blússu, sem þú
átt og passar þér vel, eða þú getur
teiknað upp sniðiö eftir teikningunni
hér að neðan. Sniðið er nr. 38, svo þú
veröur að stækka það eða minnka eftir
þvi sem við á hjá sjálfri þér. Það er
hæfiiegt að kaupa eina lengd af tvi-
breiðu efni, en tvær lengdir þarf af ein-
breiðu efni. Svo má annaö hvort
brydda vestið, eða fóðra það. Bezt er
36
talið að sauma fóður og ytra byrði
saman og snúa svo viö, ef ekki er not
-að allt of þykkt cfni I vestiö.
Dragðu upp blómamunstrið, sem
hér fylgir meö, og teiknaöu það siðan á
vestið bæði að framan og aftan, eins og
þú sérð að gcrt hefur verið á myndinni
af stúlkunni. Vestið hennar er úr
svörtu flaueli. Það er bezt að sauma út
blómin, áður en vestið er saumaö
saman, að minnsta kosti ef þaö er haft
fóðrað. Sé það einfalt gerir ekki til þó
það sé gert á eftir.
Vestiö er sérlega fallegt viö sitt pils,
og það á aö vera fljótlegt að sauma
þaö, ætti ckki aö taka myndarlega
stúlku nema eina kvöldstund.
Munstrið er saumað I meö kontórsting.