Heimilistíminn - 06.10.1977, Page 3
Kæri Alvitur
Hver eru inntökuskilyröi I bænda-
skólann á Hvanneyri? Geturðu ekki
sagt mér eitthvað frá starfi skólans?
Stundar maður skepnur? Ég hef heyrt,
að tamningaraðstaða sé þar, en verður
meður að koma sjálfur með hrossin?
Hver eru inntökuskilyrðin i hús
mæðraskólann á Varmalandi?
Hvað kostar vandaður islenikur
hnakkur og beizli? Hvar er hægt að fá
þessi reiðtygi?
Hvað kostar taminn hestur? en
ótaminn?
Hvernig á maður að velja hest?
(þægan, fallegan, fljótan eða hvað?)
Ég þakka svo fyrir skemmtilegt og
áhugavert blað, þar sem HeimilisTIm-
inn er
Með fyrirfram þakklæti
Tilvonandi bóndi
Inntökuskilyrði i bændaskóla lands-
ins er að minnsta kosti grunnskóla-
próf. Það er að hafa lokið námi i 9.
bekk.
BUfræðinám stunda menn i bænda-
skóla, og á sá skóli að veita þeim, sem
stunda vilja búskap hagnýta fræöslu.
Bændaskólar veita bæði bóklega o
verklega fræðslu. Almenn deild
bændaskóla nefnist bændadeild og lýk-
ur námi i henni með búfræðiprófi.
Námið greinist i: Liffræöisvið, búfjár-
ræktarsvið, jarðræktarsvið, bútækni-
svið ogbústjórnarsvið. Námstiminn er
eitt ár.
Auk þess sem umsækjandi þarf að
hafa lokiö grunnskólaprófi þarf hann
að hafa öðlazt f jólbreytta reynslu við
landbúnaðarstörf og að jafnaði stund-
að þau eigi skemur en eitt ár eftir
fermingu, bæði vetur og sumar. Lág-
marksaldur er 17 ár.
Siðan er hægt að stunda framhalds-
nám i búvisindum að loknu námi i
bændaskóla. Við Hvanneyri er fram-
haldsdeild, búvisindadeild. Námstimi
þar er þrir vetur. Námið hefur verið
miðað viðþað, að þeir, sem ljúka námi
þar geti tekið að sér sérfræðileg störf
fyrir islenzkan landbúnað og unnið að
rannsóknum.
Hestamannafélag er starfandi
meðal nemenda á Hvanneyri, og hefur
það yfir að ráða hesthúsi. Þangað er
tekinn einn hestur frá hverjum nem-
anda eftir áramót, og fær hann siðan
tækifæri til þess að temja hest sinn.
Varðandi skepnuhaldið er það að
segja.að verkleg kennsla er imjöltum
og sauðfjár- og nautgripadómum, auk
þess sem kennd er fóðrun nautgripa.
Inntökuskilyrði i skólann á Varma-
landi er próf úr 9. bekk grunnskóla.
Hnakkur með öllu tilheyrandi mun
ekki kosta innan við 40þúsund krónur,
og beizli ætti að vera hægt að fá fyrir
7000-8000 krónur. Hvort tveggja fæst i
sportvöruverzlunum og hjá söðlasmið-
um. Nánari upplýsingar getur þú feng-
ið i simaskránni.
Ógerningur er að segja nokkuð
ákveðið um verð á hestum. Þeir geta
verið bæði dýrir og ódýrir, og fer það
eftir aldri kostum og öllu ööru. Reyndu
að ræða við vanan hestamann um
þetta atriði.
Sennilega þyrfti helstur að vera öll-
um þeim kostum búinn, sem þú telur
upp hér,en ráðlegaster fyrir þig, að fá
einhvern vanan hestamann til þess að
velja með þér hest, ef þú ert að hugsa
um að fjárfest i einum slikum. Það
þarf þekkingu til þess að velja góðan
hest.
Kæri Alvitur,
Ég er að hugsa um að fara I Iðnskól-
ann, en fyrst langar mig til þess að
vita nokkur atriði.
. 1 Þarf maöur aö ná ákveðnum aldri
til þess að komast i Iönskólann, og ef
svo er, hvaða aldri?
2. Hvaða námi þarf maöur að vera
búinn að ljúka til þess að komast f
skólann?
3. Ilvað tekur söðlasmiðinám mörg
ár?
4. Er ekki hægt að læra söðlasmlði
annars staðar en I skóla?
Ein úr rigningunni á Suðurlandi.
1,—2. Til þess að komast I Iðnskól-
ann verður maður að hafa lokið prófi í
9. bekk grunnskóla, eða vera meö
gagnfræðapróf. Aldurinn fer þá eftir
þvi, hvað maður er gamall, þegar þvi
námi er lokið.
3.-4. Aöeins munu tveir menn á
landinu kenna söðlasmiði. Annar
þeirra er Þorvaldur Guðjónsson hjá
Baldvin og Þorvaldi Hliðarvegi 21 I
Kópavogi. Hinn er Helgi Finnlaugs-
son, Stekkholti 23 á Selfossi.
Námið mun taka fjögur ár, og
bóklegt nám fer fram i iðnskóla eins og
i öðrum iðngreinum. Ef þú hefur
áhuga á þessu námi ættir þú að setjast
niður og skrifa þessum mætu mönnum
bréf, og vita hvað þeir geta sagt þér
um söölasmiðina og nám I henni.
Meðal efnis í þessu blaði:
Flóttamenn í Evrópu.
Amy Carter..........
Megrunarkúr fyrir brauöætur
Endurfæddást—smásaga ...
Bad Company.........
bls. 4 Blóm að vetrarlagi.................bls. 15
bls. 6 Hundarnireruaugu þeirra ...........bls. 20
bls. 8 Rannsakar kynlíf hjá rottum........bls. 26
bls. 10 Póstkassar.........................bls. 36
bls. 13