Heimilistíminn - 06.10.1977, Qupperneq 13
Popp-kornið
Bad
Company
Fjórir þekktir hljómlistarmenn
Menn spáðu þeim miklum
frama og frægð fyrir mörg-
um árum. Þeir kölluðu sig
Bad Company, og einu sinni
voru þeir svo sannarlega á
toppnum, langt fyrir ofan
alla aðra. Frægð þeir ra og
vinsældir voru geysimiklar
og hver platan af annarri
kom á markaðinn frá þeim.
Frægöin kom strax meö fyrsta lag-
inu Can’t Get Enough, og ekki vakti al-
búmiö Bad Co minni athygli.
Fólk var mjög hrifiö af fjórmenning-
unum, sem voru i Bad Company. Þeir
voru allir orönir frægir áöur en þeir
ákváöu aö taka saman, og fara aö
koma fram opinberlega sameiginlega.
PaulRodgers,söngvari og gitarleikari
kom úr hljómsveitinni Free. Sömu
sögu er aö segja um trommuleikarann
Simon Kirke. Sólógitarleikarinn Mick
Ralphs kom úr hljómsveitinni Mott
The Hoople, sem einnig var vel þekkt,
og bassagitarleikarinn Boz Burrell
haföi áöur veriö meö King Crimson.
ÞeirBadCompany-menn voru sjálf-
ir ekkert hissa á þvi, aö þeir skyldu
veröa vinsælir þegar í staö. Þeir vissu
sjálfir hversu góöir þeir voru, og voru
einnig vissir um, aö samvinna þeirra
gæti leitt eitthvaö gott af sér fyrir þá
og áheyrendur og aödáendur þeirra.
Þeirunnu lika til þriggja platinu-verö-
launa fyrir þrjár breiöskifur, sem má
kallast nokkuö gott. Fyrstu þrjú al-
búmin, sem Bad Company sendi frá
sér hafa þegar veriö seldi upplögum
sem hafa áunniö þeim silfur, gull,
demant og platinuverölaun bæöi i
Bretlandi og Bandarikjunum. Albúm-
in heita: Bad Co, Straightshooter og
Run With The Pack.
Fjórða albúmiö þeirra kom i vor og
heitir Burnin’ Sky. Fjórmenningarnir
lögöu mikla vinnu i þessa plötu. Þetta
er sögö ágæt plata, en ef til vill ekki
einsgóö, og menn heföu getaö reiknaö
meö frá þeirra hendi. Gagnrýnendum
finnst platan svolitiö bragölaus, og
ekki nægilegt lif i tónlistinni.
ÞeirPaul Rodgers, Mick Ralphs og
stundum einnig Simon Kirke semja
venjulega textana fyrir hópinn, og
hafaþeirveriðóaöfinnanlegir til þess,
en I þetta skipti eru þeir ekki sagöir
eins góðir og þeir gætu veriö.
Bad Company er þekkt nafn i Evr-
ópu, en flesta áhangendur eiga þeir fé-
lagar I Bad Company þó i Bandarikj-
unum. Þar njótaþeir mestra vinsælda
og koma oftast fram opinberlega.