Heimilistíminn - 06.10.1977, Qupperneq 22
4
Berit Brænne: Þýðing: Sigurður Gunnarsson:
Sagan um Tota
og systkin hans
að, þó að hún hefði áreiðanlega viljað segja frá öllu
því, sem hún hafði reynt i þessari furðulegu ferð.
,,Ég held að ég skilji það, sem þú átt við”, sagði
pabbi. ,,Þú lagðir af stað að heiman, góðri stund á
eftir okkur, og ætlaðir að reyna að finna slóðina
okkar, en svo villtist þú alveg eins og við”.
„Heldurðu að Pila hafi líka lent i snjóflóðinu?”
spurði Tóti.
,,Það er nú nokkuð óráðin gáta”,, ,,en hitt er vist,
að hvassviðrið og hriðarkófið hefur leikið hana
grátt.
Þegar þau höfðu að lokum náð öllum snjón-
um úr feldi Pilu, tók pabbi þurra vettlinga og
nuddaði feld hennar nokkra stund. Hún bar sig
enn illa og virtist tæpast geta hreyft sig. En
þegar hún hafði lapið mjólk úr bolla, sem
Bogga færði henni, hresstist hún að mun, og þó
einkum eftir að pabbi hafði haldið henni um
stund i fangi sér og nuddað hana vel á ný.
,,Ætli þú getir ekki staðið núna, Pila litla?”
sagði hann brosleitur.
Jú, nú gat hún einmitt staðið. Svo hristi hún
sig myndarlega og gekk fáein skref. Þvi næst