Heimilistíminn - 12.02.1978, Blaðsíða 3
Sæll háttvirti Alvitur!
Við erum hér 10 stelpur i
skátafiokki, scm heitir Vofur.
Okkur langar svo að eignast
pennavini i skátaflokk i Eng-
landi eða Danmörku. Getur þú
verið svo góður að visa okkur á
eitthvert blað frá öðru hvoru
iandinu sem getur birt þessa
ósk okkar?
Vertu svo góður að birta
þetta, elsku góði Alvitur. Okkur
langar svo að eignast penna-
vini i skátaflokki.
Vofur, Arbúum Akureyri
Þar sem ég hef ekki fundið
neitt blað i þessum löndum sem
þið getið skrifað til valdi ég
aðra leið til þess að útvega ykk-
ur skátapennavini. Ég fékk
heimilisfang skátasambanda i
Englandi og i Danmörku sem
ættu að geta útvegað ykkur
skátapennavini.
1 Englandi er það The Girl
Guide Ass., 17-19 Buckingham
Pallace Rd., London SW 1W
OPT, England
1 Danmörku er það:
Pigespejdernes Fællesr*ad,
Dronningsgards Allé 122, 2840
Holte, Danmark.
Ég vona svo að þið eigið eftir
að eignast marga skátapenna-
vini á næstunni.
Hæ Alvitur og gleðilegt ár,
Ég á i dálitlum vandræðum, og ætla
hér meö að veita þér hlutdeild i þeim.
Málið er nefnilcga það að ég á enga
virkilega vini. Þ.e.a.s. auðvitað á ég
vini, en mér finnst alltaf að allir sem
tala við mig, séu bara að þvi af ein-
tómri vorkunnsemi.
T.d ef ég fer eitthvaö út að skemmta
mér, þá finnégþaöallt of vel að það er
ekki minn félagsskapur sem sótzt er
eftir, heldur þeirra, sem ég held mig
mest með.
Óg nú er svo komið aö það er ekki
neitt sem ég kviði jafnmikið fyrir og
það að fara eitthvað út. Stundum á-
kveð ég, að hætta þessu bara alveg, og
sitja heima, en svo þegar allir fara að
tala um ballið, sem á aö verða um
næstu helgiogallir ætla á, þá stenzt ég
ekki freistinguna og fer... svo endar
alltaf með þvi að þetta verður þraut-
leiðinlegt.
Nú þá hefurðu heyrt þetta, og ef þú
getur bent mér á einhverja leið, þá
máttuvisa mérá hana. Og svarðu mér
nú fljótt og svaraðu mér vel.
Blessaöur og sæll,
30475-4482
Þetta eru nú meiri vandræðin. Ég
held að ekki sé ástæða til þess að i-
mynda sér, að fólk sé einungis að tala
við þigafvorkunnsemi.Þaðnennir þvi
tæpast til lengdar og hvers vegna ætti
það að vorkenna þér?
Hresstu þig nú upp og reyndu að
stappa stáli i sjálfa þig, og fá sjálfs-
traust. Annars getur vel verið rétt hjá
þér að ekki sé eftir miklu að slæðast
varðandi þessar ballferðir og kannski
rétt eins gott aö vera ekkert að fara
með. Þú gætir nú til dæmis reynt að
sitja heima i nokkur skipti. Þá sérðu
hvortþig langar I raun og veru nokkuð
með þegar öllu er á botninn hvolft.
Langi þig samt, getur þú farið seinna,
og hver veit nema þú sjáir þá, að fólkið
hefur saknað þin á meðan þú varst
fjarverandi og ekki i hópnum.
Reynduþetta!
Elsku Alvitur!
Ég er I vandræðum. Það er óþyrmi-
lega sætur strákur, sem leigir her-
bergi I húsinu hjá mér. Hvað get ég
gert tii að vekja athygli hans á mér?
P.S. hver er happalitur, happasteinn
og happadagur Sporðdrekans?
Elsku Alvitur, ég vona, að þetta
lendi ekki i ruslakörfunni.
1260-4569
Nú er úr vöndu að ráða, með þennan
strák. Kannski þú gætir byrjað á þvi
að heilsa honum, ef þú ert þá ekki þeg-
ar farin að gera það. Svo gætir þú ef til
vill boðið honum i kaffi heim til þin, ef
hann hefur ekki aðstöðu til þess að
hafa hjá sér mat og annað álika.
Vertu bara glaðleg og hress I hvert
skipti, sem leiðir ykkar liggja saman,
og þá er ekki að vita nema hann fari að
fá áhuga á þér.
Happalitir sporðdrekans eru rauðir
litir. Topaz er happasteinninn og mið-
vikudagurinn er þinn happadagur, en
passaðu þig hins vegar á laugardögun-
um, þeir geta verið viðsjárverðir.
Meðal efnis í þessu blaði:
Er til uppskrift að barnabók...........bls. 4
Goida Meir i sviðsljósinu..............bls. 6
Fyrirheitna land Mennonitanna..........bls. 8
Stevie Nicks...........................bls. 13
Afskorin blóm og stórir steinar....bls. 14
Norska skógarkettinum borgið.......bls. 20
Tæki til að hjálpa blindum börnum _bls. 26
Þausmíða Gosa......................bls.36