Heimilistíminn - 12.02.1978, Síða 19
1 . c
d c íúskrókur”
TIR I VEIZLUR OG
VERSDAGS
min undir loki. Ef þiö notið svinakjöt i
stað nautakjöts þarf suðutiminn að
vera 45 til 50 minútur. Hreinsið græn-
metið og skerið það niöur i hæfilega
stóra bita, gulrætur i sneiðar rófur og
kartöflur i bita og laukinn i hæfilega
stórar sneiðar eða bita.
Setjið grænmetið Ut i pottinn og látiö
allt saman sjóða áfram við hægan hita
i 15 til 20 minútur, eða þangað til græn-
metið er hæfilega soðið.
Stráið persille yfir allt saman og
berið fram með brauði.
Sunnudagspottréttur
400 grömm af smábrytjuðu kjöti, 2
tsk. salt, ofurlitið af svörtum pipar, 1
hvitlauksflis, 1/2 tsk. muliö timjan, 1
litil dós af niðursoðnum tómötum (nýj-
um ef til eru) 1 stór púrrulaukur, 1 litil
dós af sveppum.
Takið kjötbitana og brúnið þá vel.
Kryddið þá þvi næst og setjið tómat-
ana út i, og sjóðið svo kjötið þar til það
er hæfilega meyrt. Það tekur um 45
minútur fyrir svinakjöt en 1 — 1 1/2
tima fyrir nautakjöt. Skerið púrruna
niður i þunnar sneiðar, geymið svolitið
af henni til þess að nota i skreytingu i
lokin. Bætið sveppunum einnig út i og
látið krauma i fimm minútur. Bragöið
á réttinum og kryddið hann meira, ef
þörf krefur. Stráið nú þvi, sem eftir er
af púrrunni yfir og berið fram með
soðnum hrisgrjónum eða kartöflum og
gjarnan hrásalati.
Ka r töf lupottrétt ur
Þetta er einfaldur og fljótgerður
réttur.
Skerið kartöflurnar niður i sneiðar
eða teninga og sjóðið þær þar til þær
eru orðnar mjúkar i kjötteningasoöi.
Bætið svo út i einhverju a? grænmeti:
Margt kemur til greina, rófur, gulræt-
ur, paprika , baunir og sitthvað ann-
að, sem fyrir hendi er. Undir lokin er
svo skorin niðúr einhver bragðgóð
pylsa, sem ekki þarf að sjóða, heldur
nægir aðeins að hita upp: Rétturinn er
tilbúinn, og ekkert er eftir annað en aö
berahann fram. Hann er góður á köld-
um degi, þegar þið viljið ekki hafa allt
of mikið fyrir matseldinni, og ekki fá
eitthvað óttalega tormelt.
Pottréttir eru bornir fram í pott-
unum, sem þeir eru soðnir i, og þess
vegna er gaman að matreiða þá i ein-
hverjum fallegum potti, ef þiö eigið
hann til. Annars er auðvitað lika hægt
að hella honum i aBnað ilát, þegar
hann er tilbúinn.