Heimilistíminn - 19.03.1978, Blaðsíða 12

Heimilistíminn - 19.03.1978, Blaðsíða 12
Hannes Stephensen I þeirra hópi og haföi ákveðnust og mestu áhrifin. Séra Hannes hafði mikil áhrif i héraði sinu. Hann hélt fundi meðal kjósenda sinna og hvatti þá til þátttöku i stjórnmál- um. Talið er að árið 1850 hafi 40 manns sótt Þingvallafund úr Borgarfjarðar- sýslu. Sama var um aðra Þingvallafundi. Borgfirðingar sóttu þá mjög vel. Eins og nærri má geta, þótti dönsku stjórninni og umboösmönnum hennar nóg til um skoöanir og framkvæmdir séra Hannesar. Meðan þjóðfundurinn stóð yfir sumarið 1851, sendi danska stjórnin hing- að herlið, sem var tilbúið til árásar, ef á þyrfti aðhalda. Þetta var i fullu samræmi við það, sem gerðist með sams konar samkomur íEvrópu á þessum árum. Viða ilöndum hafð verið stofnað til funda til aö gera tillögur um frjálsi. stjórnarfar. En þær leystust flestar upp með þvi að herlið rauf þær, og uðru sumstaðar blóðug átök. En til sliks kom ekki á Islandi, enda voru litlir möguleikar til þess að slikt gæti orðið. En hins vegar gekk sú saga að Trampe greifi og stiftamtmaður hafi svo fyrir mælt við hina dönsku hermenn, er hér dvöldu um skeið um sumarið, að ef til slikra óspekta kæmi, þá ættu þeir fyrst að skjóta þrjá menn, helztu fyrirliða þjóöar- innar, og einkenndi hann þá svo: þann grá, það var Jón Sigurðsson, þann halta, það var Jón Guðmundsson og þann feita, en það vár séra Hannes Stephensen. Siðasti Þingvallafundurinn, sem séra Hannes Stephensen sat var árið 1852 og voru þá mættir með honum 32 menn úr Borgarfjarðarsýsíu. Hann setti þennan fund og þakkaði fundarmönnum fyrir góða samvinnu á undanförnum árum og árnaöi þeim heilla. A þessum fundi var það ráðið, að gefið skyldi út róttækt blað er túlkaði skoðanr frelsishreyfingar þjóð- arinnar. En það var Þjóðólfur, sem nokkrir menn keyptu þá um haustið. Séra Hannes Stephensen og kona hans, Þórunn Magnúsdóttir Stephensen bjuggu góðu búi og voru veitingasöm og miklir höfðingjar i héraði. Þau áttu þrjú börn: 1. Guðrún fædd 25. júli 1827. Hún varð fyrsta kona Jörgens Péturs Havsteins amtmanns nyrðra. 2. Ragnheiður dó tveggja ára. 3. Magnús dó við laganám i Kaup- mannahöfn. Séra Hannes Stephensen dó 29. sept. 1856. En Þórunn kona hans 16. júní 1876. Séra Hannes Stephensen var mikilhæf- ur maður á öllum sviðum er hann starfaði á. Hann er mestur i minningunni af störf- um sinum á sviði stjórnmálanna og hans verður alltaf minnzt af þjóðinni, sem ein- hvers mikilhæfasta baráttumanns hennar fyrir frelsi og bættri stjórnskipan á fyrstu árum hins endurreista alþingis. Hann var maður breyttra tima i land- inu, frjálslyndis og frihyggju. Hann kunni alira manna bezt aðhalda á máli sinu, svo 12 ^wvinir Óska eftir að skrifast á við stelpur og strák á aldrinum 13 til 17 ára. Sjálf er ég 14 ára. Ahugamál: hestar, iþróttir dans og söngur. Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er. Svara öllum bréfum. Begga Jónsdóttir, Kraunastöðum, 641 Aðaldal, S. Þing. Við undirritaðar óskum eftir penna- vinum á öllum aldri. Hárlokkur og mynd fylgi fyrsta bréfi, ef hægt er. Sigriður Alfreðsdóttir, Fremri Hlið, 690 Vopnafirði. Sigurbjörg Kristin Guðmundsdóttir, Hauksstöðum 690 Vopnafirðá. Ég óska eftir pennavinum á aldriin- um 13 til 14 ára, stelpum eða strákum. Svara öllum bréfum, ef hægt er. Róbert Ingimundarson, Egilsbra'ut 18 Þorlákshöfn. Okkur langar að eignast pennavini, stráka ogstelpur, 13 til 15 ára. Ahuga- mál okkar eru: sund, strákar, böll, popplög og margt, margt fleira. Mynd fylgi fyrsta bréfi. Anna Maria Jonsdóttir, Reynivöllum 6, SOOSelfossi. það hefði áhrif, kunni að me'ta stöðu sina, hæfileika og þjóðfélagslega aðstöðu, svo að áhrif hans yrðu sem allra mest. Stétt- arbræður hans tóku hann sér til fyrir- myndar, og það varð hrðður þeirra og gæfa að feta i fótspor hans, og marka með þvi nýjan dag að eyktuin i framförum landsins. Margir prestar hafa setið á al- þingi, og eiga eftir að sitjgi þar. Þeir munu aldrei bregðast þjóð sinm, taki þeir hann til fyrirmyndar. Heimildir. Sighvatur Grimsson F.íorgfirðingur, Páll Eggert ólafsso'n, Jón Sigurðsson, Sverrir Kristjánsson, Hugyekja til tslend- inga o.fl. ) 1 Guðrún Halldóra Sigurðardóttir, Fossheiði 15, 800 Selfossi. Mig langar til að skrifast á við stelp- ur og strák á aldrinum 15 til 17 ára. Ahugamál eru: Skemmtanir, böll, úti- legur og margt fleira. Mynd óskast með fyrsta bréfi, ef hægt er. Bryndis Svavarsdóttir, Skógargötu 5B, Sauðárkróki. Okkur langar að skrifast á við krakka á aldrinum 12 til 14 ára. Ahugamál: Popp, strákar og fleira. Vilborg Eiriksdóttir, Miðengi 1, Selfossi. Herdis Halla Ingimundardóttir, Laufhaga 12 800 Selfossi. Óska eftir pennavinum, strákum og stelpum á aldrinum 12 til 13 ára. Verð sjálf 13ára á árinu. Ahugamál: Iþrótt- ir, sund, dans og m.fl. Mynd fylgi fyrsta bréfi, ef hægt er. Þórhalla Karlsdóttir, Lerkilundi25 Akureyri. Mig langar að skrifast & við stráka og stelpur á aldrinum 12 til 15 ára. Sjálf er ég að verða 13. Ahugamál mörg, t.d. dýr og frimerki og fl. Svara öllum bréfum. Vigdis Hauksdóttir, Stóru Reykjum, 801 Selfossi. Hvað má ég svo gefa yöur til þess að fá að kyssa yöur? Vatn.

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.