Heimilistíminn - 19.03.1978, Blaðsíða 13

Heimilistíminn - 19.03.1978, Blaðsíða 13
Pöpp-körmð SONGVARINN HEPUR VERIÐ BLINDUR ALLT FRÁ FÆÐINGU Feliciano — nafnið þýðir ,,Hinn hamingjusami” en þvi miður hefur ekki alltaf hamingjan leikið við Bandarikjamanninn, sem þetta nafn ber. Jose Fel- iciano fæddist blindur — og það eru örlög sem ekki eru léttbær. Þegar i æsku sýndi Jose óvenjulega tónlistarhæfi- leika. Fyrsta hljóðfærið hans var tómt kökubox, sem hann trommaði á og fylgdi með taktinum i lögunum, sem frændi hans söng fyrir fjölskylduna. Þegar Jose var sex ára gamall fékk hann sinn fyrsta gitar, og hann kastaöi sér yfir hljóöfærið með miklum fitons- krafti og áhuga. Hann læröi af sjálfum sér að spila á gitarinn, og nii i dag er hann jafnþekktur fyrir gitarleik sinn sem hann er fyrir söng sinn og fallega söngrödd. Hinnungi Jose var svo ákaf- ur i að æfa sig, að mamma hans var að neyða hann til þess að leggja frá sér hljóðfærið, þegar komið var að hátta- tima hjá honum Nú leikur hann einnig á banjo, bassa, mandolin, munnhörpu, pianó og orgei, auk þess sem hann hgldur enn tryggð við gitarinn. Jose Feliciano fæddist á Puerto Rico, en fjölskyldan fluttist til New York, þegar Jose var enn mjög ungur. Hann á sjö systkini. Hann kom fyrst opinberlega fram á E1 Teatro Puerto Rico i spænska Har- lem i New York. Þessi niu ára gamli blindi drengur vakti mikinn fögnuð og athygli og varð aö syngja og spila mörg aukalög. Plötuframleiöendur uppgötvuðu hann fyrst árið 1963, þegarhann söng i litlum klúbbi — Gerde’s Folk City — i Greenwich Village. Arið eftir vakti hann geysilegan fögnuð áheyrenda á Newport Folk Festival. Þegar eftir að fyrsta platan með honum kom á markaðinn sögðu gagn- rýnendur að Jose Feliciano ætti eftir að verða heimsfrægur söngvari. Það tók heldur ekki langan tíma fyrir hann að ná þvi marki. Light My Fire, The WindmiUs Of Your Mind, Hey Baby, Ole Turkey, Buxxard, California Dreamin’, First of May, Miss Otis Re- grets, Rain og No Dogs Allowed eru nokkur af vinsælustu lögunum hans. Siðastnefnda lagið var skrifað eftir hljómleikaferð,sem Jose Feliciano fór til Englands, en þar varö hundurinn hans, sem leiðir hann um allt, að fara I sóttkvi, þegar þeir komu til landsins. Auk áðurnefndra laga hefur Jose Feliciar.o leikið inn á fjölmargar plöt- urog þá aðallega alls konar bandarisk lög.

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.