Heimilistíminn - 30.04.1978, Qupperneq 4
Denise Schmandt-Besserat.
Forleifafræðingar hafa
lengi viljað halda þvi fram, að
menn hafi fyrst farið að skrifa
Mamma, mamma. Hann afi
eyðilagði hjólaskautana mina.
Byrjuðu
menn að
skrifa 8.500
árum fyrir
Krist?
fyrir um það bil 5000 árum, og
hafi það verið Súmerar, sem
fyrstir skrifuðu, en þeir
bjuggu þar, sem nú er'lrak.
Rannsóknir sem Denise
Ég skemmti mér svo dæmalaust
vel. Farðu nú ekki aö eyöileggja
þetta allt fyrir mér.
Schmandt-Besserat hefur
gert, benda þó til þess, að
menn hafi verið famið að
skrifa að minnsta kosti 5000
árum áður.
Denise Schmandt-Besserater aðstoðar-
deildarstjóri fyrir deild þeirri við háskól-
anní Texas.sem helgarsig rannsóknum i
Mið-Austurlöndum. Hún heldur þvi fram,
að skrift hafi þróazt úr merkjamáli, sem
notað var i sambandi við verzlun og við-
skipti. Hún hefur rannsakað merkin, eða
smásteinana, sem notaðir voru og hefur
unnið að þessum rannsóknum i átta ár á
ýmsum stöðum, þar sem fornleifar hafa
fundizt og einnig hefur hún rannsakað
þessa hluti i söfnum viða i Evrópu.
Einhvern tima i kringum 8500 árum
fyrir Krist fóru menn að nota leirmerki,
sem áttu að tákna hluti og tölur. Hiröingj-
ar t.d. héldu tölu yfir hjarðir sinar með
þvi að hafa ákveðin merki fyrir hverja
hjörð í hver jum haga. Þegar kindur voru
til dæmir fluttar milli beitilanda voru leir-
töflurnar einnig fluttar milli tágakarfa.
Frú Schmandt-Besserat segir, að ein-
hvernt ima i kringum 3500 fyrir Krist hafi
þessi merki eða töflur verið geymdar i
nokkurs konar leirumslögum, sem kölluð
voru bulla og voru þau notuð við viðskipti
alls konar.
Framleiðandinn fól þá vörur sinar i
hendur milligöngumanni, og lét hann
manninn einnig fá i hendur bulla, sem i
var ákveðinn fjöldi merkja, og táknuðu
farminn og magn hans segir frúin i grein
sem hún ritaði fyrir nokkru i timaritiö
Discovery sem Texasháskoli gefur út. —
begar móttakandi vörunnar fékk hana i
hendur braut hann bulla og gat þá séö,
hvort hann hefði fengið allt þaö, sem upp-
haflega hafði verið sent af stað til hans.
4