Heimilistíminn - 30.04.1978, Side 14
Er vinnan að
gera þig að
aumingja
9 Það þarf ekki að vera ímyndun
- Taugaspenna getur drepið fólk
Ef þú ert slæmur á.taugum
eða með lélegt hjarta ættir þú
ekki að vinna á sjúkrahúsi,
leika i hljómsveit eða starfa
við auglýsinga- og kynninga-
störf. Þér væri ráðlegra að
vera klæðskeri, sölumaður,
landmælingamaður eða
skreytingamaður.
Þessar ráöleggingar koma frá Michael
J. Colligan, rannsóknarsálfræðingi við
National Institute for Safety and Helath i
Cincinnati og tveimur samstarfsmönnum
hans, sem gerðu athugun á þvi, hvaða
störfum fylgdi mest streita. Rannsóknin
var framkvæmd i Tennessee og byggðist
á þvi hvaða starfshópar lentu þar aðal-
lega á geðsjúkrahúsum á 18 mánaða
timabili. Sjúklingunum var skipt niður i
130 mismunandi starfshópa.
Eftir að visindamennirnir höfðu beitt
nokkurri reikningskúnst gátu þeir lagt
fram lista yfir þau störf, sem liklegust eru
til þess að reka menn á geðveikrahæli.
Niðurstöðurnar voru svo birtar i nýút-
komnu hefti af Journal of Human Stress,
og vöktu þær töluverða athygli margra.
Sum störf, sem menn hafa lengi talið
streitu-störf sýndust nú næsta áhyggju-
laus, að minnsta kosti i Tennessee.
Kennarar voru i 47. sæti á listanum, lög-
regluþjónar i sjötugasta. Læknar, lög-
fræðingar og ritstjórar voru allir langt
niðri.
Störfin, sem mest streita virtist fylgja,
voru öll á heilsugæzlusviðinu: Hjúkrunar-
tæknar,hjúkrunarkonur, rannsóknar-
stofufólk og sjúkraliðar lentu í tiu efstu
sætum listans.
önnur störf, sem mikil streita fylgdi,
voru störf þjóna og framreiðslukvenna,
eftirlitsmanna, tónlistarmanna, starfs-
fólks i auglýsinga- og kynningarstörfum,
uppþvottafólks og vöruhúsamanna.
Minnstrar streitu varð vart hjá liturum,
sölumönnum, klæðskerum, efna-
fræðitæknum, miðasölufólks, verðbréfa-
sala, landmælingamanna og skreytinga-
fólks.
Colligan er varkár i sambandi við
niðurstöður rannsóknarinnar. Hann segir,
að þetta séallt á byrjunarstigi, og niður-
stöðurnar bendi einungis til þess hvaða
störf kunni að þurfa frekari athugunar
við.
1 rannsókninni var ekki gerð tilraun til
þess að kanna hvort starfið sem slikt, eða
eitthvað annað i lifi mannsins hefði orðið
til þess að hann þurfti á geðsjúkrahúsvist
að halda.
Colligan pgði einnig, að vel gæti verið,
að ekki vaéru'nægilega margir fulltrúar
fyrir hinar ýmsu starfsstéttir i úrtakinu.
Kaupsýslumenn alls konar og menntað
fólk, sem gæti greitt fyrir sálfræðiaðstoð
væri ekki liklegt til þess að lenda á al-
mennu geðsjúkrahúsi. Þá þurfti hver
starfahópur, sem tekinn var með I at-
huguninni að eiga að minnsta kosti eitt
þúsund fulltrua.á Tennessee. Það varð til
þess að störf, sem allir vita að eru mjög
streitumyndandi, eins og t.d. störf flug-
manna og flugumferðarstjóra, voru ekki
með i athugun þremenninganna.
Sumir þeirra, sem lentu ofarlega á
listanum, vissusjálfir fyrir löngu, að störf
þeirravoru erfið og taugaslitandi. Þeirra
á meðal er Lester Salomon, auglýsinga-
stjóri fyrir félag hljóðfæraleikara. Hann
getur sagt frá athugun, sem gerð var á
hljóðfæraleikurum i hljómsveitum i
Evrópu, þar sem fram kom að horna-
leikarar koma næst á eftir flugmönnum
hvað streitu af völdum starfs þeirra
snertir. Salomon er sjálfur hornablásari
og hefur verið 10 ár meðNew York Metro-
politan Óperunni, og það hefur tekið á
taugarnar.
— Maður er alltaf að reyna að vera full-
kominn, segir hann. — Þú ert i stöðugri
samkeppni við sjálfan þig, en á sama
tima verður þú að taka tillit til hinna
leikaranna i hljómsveitinni. Þú leikur
ekki einrl með sjálfum þér.
Hjúkrunarkonur vita lika vel, að starfi
þeirra fylgir mikii taugaspenna, og þeim
er kennt að varast hana. Spennan stafar
af þvi, aðþær eru allan liðlangan daginn
nokkurs konar milliliðir milli sjúkrahúss-
ins og óhamingjusamra sjúklinga.
— Hjúkrunarkonan þarf alltaf að taka
við kvörtunum sjúklingsins, segir Grace
Davidson, Mkrunarstjóri við New York
University Medical Center. Hvenær svo
sem sjúklingurinn er óánægður með mat-
inn, umönnunina eða hvað annað fær
hjúkrunarkonan að heyra um það.
Ungfrú Davidson segir, að vandamálin
séu meira að segja enn meiri á gjörgæzlu-
deildunum, þar sem hjúkrunarkonan
verður alltaf stöðugt að vera á verði, og
fylgjast með öllu, sem fram fer fyrir aug-
um sjúklingsins og gjarnan aðstandenda
hans lika. Hún verður að gæta þess vand-
lega að.geraaldrei neitt, sem getur vakið
andúð eða reiði.
Colligan telur, að hjúkrunarfólk, þjónar
og fólk i kynningarstörfum verði fyrir
svona m ikilli streitu i vinnunni vegna þess
að það er alltaf i stöðugu sambandi við al-
menning,oghefur þó ekki ætið stjórn á at-
burðarásinni, ef svo mætti segja.
Hjúkrunarkonur bera ábyrgð á góðri líð-
an sjúklingann, en þær verða þó alltaf að
leita til læknanna um allt, sem gera þarf.
, Framreiðslustúlkur verða að sinna leiðin-
legum viðskiptavinum, en mega ekki
svara fyrir sig, þótt þær langi mikið til
þess. Auglýsingafólkið stendur milli at-
vinnurekandans og almennings, sem er
fullur efasemda um það, sem verið er að
auglýsa eða kynna.
— Taugaspenna getur fylgt hvaða starfi
sem er, þegar starfsmaðurinn ber ábyrgð
á verkinu, oghonum er ætlaðað vinna vel,
en hann hefurþó ekki vald til þess að gera
þaðsem hannsjálf ur telur vera rétt, segir
Colligan.
' Fólk, sem vinnur i nánu sambandi við
annað fólk, er fljótara að gera sér grein
fyrir, efandlegriheilbrigðierhætt, og það
leitar þvi gjarnan fyrr hjálpar en sumir
aðrir, aðsögn Colligans, enda hefur sálar-
ástand þess áhrif á það, hvernig verkið er
unnið. Við önnur störf gætir þú vel verið
taugaveiklaður og það myndi engu breyta
um framkvæmd verksins.
Störf, sem ekki eru hátt skrifuð á lista
Colligans.og teljast ekki streitumyndandi
þurfa þó alls ekki að vera ábyrgðarlaus
eða litilmótleg. Umhverfið getur haft
mikil áhrifá störfin, og streita i ákveðnu
starfi getur verið meiri á einum stað en
öðrum. — Það er til dæmis i hæsta máta
ólikt að vera lögreglumaður i Tennessee
eða i New York, segir Colligan. Það er
vist áreiðanlegt, að það er tvennt ólíkt að
vera i New York eða i Tennessee, i hvaða
starfi sem er. Streitan er liklega á fáum
stöðum meiri en i New York, og Tenne-
ssee, heimariki hins þekkta Davey Crock-
ett, er mun rólegra og friðsælla á allan
hátt. Þfb t
i .iI , ■ i 11, i i 'I ti .1 l
14