Heimilistíminn - 30.04.1978, Blaðsíða 17
Kafað í körfuna
IJT-
SAUMUÐ
TASKA
Munstur, sem venjulega eru
hugsuð sem krosssaums-
munstur í púða má gjarnan
nota i sitthvað fleira. Hér hef-
ur eitt slíkt munstur verið
notað í útsaumaða tösku.
Taskan er saumuð i gróft
aida-efni, og garnið sem
saumaðer meðer einnig gróft.
Taskan er f ullf rágengin 39x39
cm að stærð, en til þess að sú
stærð fáist verður upphaflega
efnismagnið að vera 42 cm
tvisvar sinnum. Það er brotið
saman i tvennt og munstrið
saumað í báðar hliðar. Þegar
munstrið er fullsaumað er
taskan saumuð saman á hlið-
unum og einnig er brotið innan
í hana að ofan. Það má hafa
ýmislegt fyrir hö Idur. Til eru í
verzlunum kringlóttar og hálf-
mána-höldur, sem sauma má í
töskuna, og svo mætti kapp-
mella utan um nokkra þræði af
garninu og fá með því höldu í
sama lit og t.d. munstrið í
töskunni.
Ef þið óttist, að dót geti
dottið upp úr töskunni er rétt
að setja smellur í opið. Eftir að
hliðarnar haf a verið saumaðar
saman á röngunni er taskan
vörpuð saman á réttunni með
sama lit og munstrið er
saumað með. Taskan, sem
myndin er af er gul í grunninn
og munstrið og höldurnar eru
sægrænar.
Ef þið nennið ekki að sauma
munstrið í báðar hliðar tösk-
unnar gætuð þið þess í stað
saumað fangamarkiðykkar í
bakhliðina.