Heimilistíminn - 30.04.1978, Page 19
Steiktar kálbúllur
Eitt litið kálhöfuð, 250 gr
kjötfars, 1/2 dl hrisgrjón
soðin i 2 dl af vatni, 2 dl
mjólk, salt, hvitur pipar,
smjör til steikingar og 3 dl
kjötsoð af teningum.
Takið léleg blöð utan af kálhöfðinu,
ef einhver eru. Skerið það i sundur og
takið úr þvi miðjuna. Setjið það i sjóð-
andi léttsaltað vatn, og látið það vera i
því þar til blööin eru orðin mjúk. Látið
vatnið renna af kálinu og þurrkið blöð-
in. Sjóðiö hrisgrjónin og kælið þau.
Blandið hrisgr jónunum saman við
farsið, og einnigkryddi og kjötsoöi og
mjólk. Leggið rúmlega eina matskeið
af blöndunni á hvert kálblað, rúllið
saman og stingið tannstöngli i til þess
að rúllan haldist vel saman.
Hitið nú smjörið á steikarpönnunni
og leggið kálrúllurnar á pönnuna.
Brúnið kálrúllurnar beggja megin.
Setjið nú vatn á pönnuna þannig að
það blandist saman við steikingarefn-
in, sem sitja eftir á pönnunni. Leggið
kálrúllurnar i soðið og látið þær malla
i ca 15 minútur.
Rétturinn er borinn fram með
kartöflum og rabarbarasultu.
Takið mestan hluta brauðs-
ins innan úr fjórum rúnn-
stýkkjum. Smyrjið þau lítil-
lega að innan með smjöri og
síðan með lifrarkæfu.
Leggið hrátt egg í holuna.
Stingið því næst rúnnstykkjun-
um inn i ofn, 225 stiga heitan,
og látið þau vera þar þangað
til eggin eru farin að stífna.
Leggið þessu næst nokkrar
ræmur af hraðsteiktu beikoni i
kringum eggið og skreytið með
söxuðum graslauk eða
einhverju öðru grænmeti, sem
til fellur.
EGG í HREIÐRI MEÐ
BEIKONI
19
r
inn