Heimilistíminn - 30.04.1978, Blaðsíða 24
Stúlkan kom aftur inn i herbergið, en það
mátti enn heyra þaðan grát.
— Eruð þér læknirinn? spurði hún áköf.
John Davidson kinkaði kolli.
— Viljið þér lita á litla drenginn minn? Hún
leit til þeirra þriggja, sem i herberginu voru
með mótþróa i augnaráðinu — til tengdaföður
sins og tengdamóður og unga mannsins, sem
Barbara imyndaði sér, að væri eiginmaður
hennar.
örstutta stund sagði enginn neitt. Þá sagði
dr. Davidson lágt: — Ert þú móðir barnsins?
Stúlkan kinkaði kolli til samþykkis.
Hafði henni fundizt andlit stúlkunnar tilfinn-
ingalaust? Barbara gerði sér nú ljóst, að hún
hafði haft á röngu að standa.
Hvert svo sem uppeldi hennar haði verið, þá
var greinilegt, að ást hennar'á barninu hafði
náð yfirhöndinni. Það var enginn ótti lengur i
svip hennar, þegar hún leit til fólksins.
John Davidson fylgdi henni inn i herbergið ,
og lokaði á eftir sér.
Það heyrðist hátt i klukkunni á veggnum.
Mennirnir tveir gengu þegjandi út úr húsinu
bakdyramegin.
Um stund heyrðist ekki annað en snarkið i
eldinum, og suðið i oliulampanum við hliðina á
Barböru.
— Ruth hefði ekki átt að gera þetta, sagði
fullorðna konan að lokum. — Hún er hrædd um
drenginn sinn. Það verður allt i lagi með hann.
Ruth skortir trúna.
Það er erfittað vita, hvað segja ætti, og þó....
Barbara fór að segja frá öllum þeim stór-
kostlegu hlutum, sem John Davidson hafði gert
á sjúkrahúsinu. Hún sagði frá barninu, sem
.hann hafði bjargað frá þvi að vera örkumla allt
sitt lif. — Og þetta er ekki doktor Davidson
einn, sagði hún varlega, það er hlutverk allra,
sem á sjúkrahúsinu eru, að hjálpa ykkur.
Höfðu orð hennar haft nokkur áhrif? Það var
ekkert hægt að lesa úr svip konunnar.
Dyrnar opnuðust og John Davidson kom
fram, og á eftir honum fylgdi stúlkan, sem leit
snöggt til tengdamóður sinnar. John Davidson
ávarpaði konuna og sagði:
— Við sendum hingað sjúkrabil strax i nótt,
til þess að ná i barnið. Það er með lömunar-
veiki á byrjunarstigi, og fái það ekki rétta um-
önnum deyr það eða verður örkumla til ævi-
loka. Móðir barnsins hefúr samþykkt þetta.
Hann benti nú Barböru að fylgja sér. Hann
tók upp þungan frakkann sinn af stólnum i
fremra herberginu og svo gengu þau út úr hús-
inu.
— Þorir þú að taka barnið, sagði Barbara.
— Ég tek drenginn.jafnvel þótt ég verði að fá
rikislögregluna til þess að hjálpa mér. Lif eins
drengs er meira virði en það, hvort fólkið verð-
ur óánægt eða ekki.
— Ég ásaka svo sem ekki þetta fólk, einsog
þú skilur, hélt hann áfram. — Fáfræði og
hleypidómar eru ekki bundnir við þessi héruð
eingöngu. Læknavisindin hafa lengi orðið að
heyja baráttu við slikt alls staðar.
Stormur hafði skollið á, á meðan þau stóu við
i húsinu og John Davidson þurfti á allri sinni
leikni að halda við að aka bilnum eftir slæmum
veginum, sem þau höfðu komið eftir skömmu
áður:
— Þakka þér fyrir, að þú skyldir koma með
mér, sagði hann einfaldlega, um leið og hann
skildi við Barböru við dyrnar heima hjá henni.
— Ég gerði svo sem ekki neitt, sagði hún
sorgmædd.
— Þú ætti ekki að vanmeta sjálfa þig. Þessi
stúlka hefði aldrei látið undan, nema vegna
þess að þú varst þarna með og hafðir áhrif á
hana. Þú gafst henni styrk til þess að gera það,
sem hún hefði aldrei gert annars. Maðurinn
sagði mér að tengdadóttir sin vildi ekki láta
flytja barnið úr húsinu.
Ég hefði ekkert getað gert án samþykkis
hennar. Hann tók þéttingsfast i hönd hennar
um leið og hann bauð góða nótt.
Var þetta upphaf einhvers meiri og gagn-
kvæmari skilnings milli þeirra, hugsaði hún og
fylltist nýrri von.
Áttundi kafli
Fimm börn voru flutt á Hilton General i
framhaldi af þessari heimsókn.Barböru gafst
tækifæri til þess að fara i heimsókn á barna-
deildina, daginn eftir að börnin komu. Hún
hafði tekið með sér nokkur leikföng og spil,
sem höfðu komið dálitið skemmd i búðina, og
afhenti þau nú hjúkrunarkonunni á vakt á
deildinni.
Hjúkrunarkonurnar sögðu, að börnin, sem
komið hefðu fáum dögum áður, væru enn alveg
rugluð vegna hins nýja umhverfis. Þrjú lömun-
arveikitilfellin voru mjög alvarleg og þurftu
sjúklingarnir að vera i stállungum, en tvö
börnin voru nægilega hress til þess að leika sér
Z4