Heimilistíminn - 30.04.1978, Page 27
'ST' 1
^ 1 jBHHSL
. 1 > g
Og hvað á svo að gera næst
Þegar þú ert búin að koma þessu i kring
verður þú að láta allar gamlar reglur um
hárgreiðslu lönd og leið. T.d. kemur alls
ekki til greina að bursta hárið. Mun betra
er að greiða það með grófri greiðu. Úða
vatni yfir það til þess að gera það úfið.
Nú þarf maður vist ekki lengur að hafa
áhyggjur af rigningardögum ogekki þarf
maður heldur að óttast að hárlagningin
leki úr hárinu mitt i einhverri veizlunni.
Nú ku lika vera ónauðsynlegt að þvo
hárið eins oft og áður og ætti að nægja að
þvo það tvisvar í viku. Mjög þýðingar-
Þannig eru rúllurnar scttar í liárið ef þið
ætlið að gera það sjálfar með hárliðunar-
vökvum, sem nota má i lieimahiisum.
llér sjáið þið hvernig klippa á hárið. Sex
eru klippingarstigin.
mikið er að bera eitthvað i hárið, Cream
Silk er þar nefnt sem dæmi. Einnig tekur
heldur lengri tíma að þurrka hárið eftir
þvotta heldur en áður af þvi að ekki er
gott að þurrka það i hárþurrku þá verður
það allt of villt og óviðráðanlegt.
bær konursem eru með þykkt og lifandi
hár þurfa ef til vill ekki að fá sér per
manet, heldur nægir þeim að greiða það
bara með grófri greiðu og renna fingrun-
um i gegn um það á meðan það er að
þorna af sjálfu sér.
Þfb
11 Hér sjáið þið nokkrar þekktar konur með
þessa nýju hárgreiðslu. Fyrst er það
Sophia Loren sein vill liafa hárið úfið villt
og beint. Næst keniur Mary Quant sem
kallar hárgreiðsluna loðhundsgreiðsluna.
llún hefur hárið stutt slétt og þétt upp að
höfðinu. Barbara Diekson er með meiri
liöi næstum Alfro-krullur. Haquel Welch
er með villta og frjálsa greiðslu. Slikt
myndi ekki öllum falla cn þessi greiðsla
A er fyrir konur á borð við Raquel. Sarah
Collins er með svipaða greiðslu en þó ekki
eins villta.
27