Heimilistíminn - 30.04.1978, Page 37
Gauti Hannesson:
Föndurhornið
Hvað smíða þau í
grunnskólunum?
Þessa teikningu gerði Bjarni
Ólafsson, og hún er fengin hjá
Fræðsluskrifstofu
Reykjavikur. Þetta er borð-
lampi úr tré, teiknaður i fullri
stærð.
Efnið gæti verið teak, ma-
honý, birki eða fura.
Fótstykkið er limt og
skrúfað á fótinn og bora þarf
gat, 10 mm eftir endilöngum
lampafætinum, fyrir snúruna.
Ef til vill mætti fótstykkið
vera ofurlitið stærra en það,
sem myndin sýnir, og er þá
stöðugleikinn hafður i huga.
Berið teak-oliu á að siðustu.
Ahyggjur mínar eru
meiri en nágranna míns
en á hinn bóginn eru
börnin hans verri en mín
börn.
Dóttir min er komin í
hússtjórnarskóla og það
fyrsta sem hún lærði var
að maður opnar ekki egg
með dósaupptakara.
•
Konan trúir hverju sem
er svo fremi það sé ekki
allt of trúlegt.
•
Sumir læknar hafa mikla
trú á að áföll hafi góð
áhrif á sjúklingana og
þess vegna senda þeir
reikningana sina út
mánaðarlega.
•
Konan sem setur rétta
tölu kerta á afmælistert-
una sina leikur sér að
eldinum.
Hvit lýgi er það sem við
sjálf segjum,svört lýgi er
það sem við heyrum.
Margt óhappið gerist i
eidhúsinu, einnig gerast
óhöpp í baðherberginu en
flest gerast þó óhöppin í
svefnherberginu.
HI^IÐ
Sparnaður er mikil dyggð, en það
eru forfeðurnir, sem hefðu átt að
vera sparsamir.
Ég var ekki að flauta á þig. Mig
vantaði leigubil.
37