Heimilistíminn - 14.06.1979, Page 6
Sólarorkuhúsift er i miójum eplagarði i Nýja Englandi i Bandarikjunum.
Víðar en á Islandi hefur orku-
kreppan látið til sín taka, og fólk
veltir því nú fyrir sér I alvöru,
hvernig draga megi úr notkun
olíu við upphitun húsa. Margir
vonast til þess að innan fárra ára
verði menn farnir að hita hús sín
upp með orku sólarinnar. Hjónin
dr. og frú William F. Thompson í
Nýja Englandi í Bandaríkjunum
eru svo sannarlega á undan sinni
samtið, þar sem þau notast nær
eingöngu við sólina til þess að
hita upp húsið sitt.
Thompson-hjónin hafa hlotift viöur-
kenningu fyrir þetta sólarorkuhús, og
menn segja, aö þau, eins og landnemarn-
ir, sem fyrstir komu til Nýja Englands,
séu sjálfum sér nóg varöandi upphitun-
ina. Þau þurfa ekki aö treysta á olfu eöa
gas. Nú er liöinn fyrsti veturinn þeirra I
húsinu, sem þau hafa hitaö þaö upp meö
sól, aö þvi undanskildu, aö stöku sinnum
kveikja þau upp I eldstæöi, rétt til þess aö
orna sér viö á kvöldin.
Thompson-hjónin búa skammt frá Bost-
on, og þar var veturinn nokkru kaldari en
þrjátiu ára meöaltal gerir ráö fyrir. 1 tiu
nætur samfleytt var um og yfir tuttugu
stíga frost og jafnvel ennþá meira.
Thompson-hjónunum leiö þó mætavel i
húsinu sinu hlýja.
Frú Thompson þurfti ekki aö kveikja
upp I arninum þrátt fyrir þennan mikla
kulda fyrr en liöa tók á dagana. bá voru
settir nokkrir myndarlegir viöardrumbar
á eldinn, svo aö hann logaöi fram eftir
kvöldi og jafnvel entist glóö I arninum
fram á nótt. Undir venjulegum kringum-
stæöum vilja hjónin alls ekki kynda svo
lengi, vegna þess aö þeim þykir betra aö
sofa 1 fremur svölu lofti.
— Mér liöur alltaf óskaplega vel i hús-
inu , segir frú Thompson. — Ég get alltaf
fundiö mér einhvern hlýjan og notalegan
staö aö sitja á.
Ekki geta þau hjón sagt þaö sama um
húsiö, þar sem þau bjuggu áöur, en þaö
var hitaö upp meö oliu. Þótt þau stilltu
Sólarorkan notuð til
upphitunar
6