Heimilistíminn - 14.06.1979, Qupperneq 9
hlotið viðurkenninguna House of the Year
hjá Architectural Record magazine fyrir
árið 1979.
Sagt er, aö þrátt fyrir þaö að veðrið i
Nýja Englandi sé oft á tiöum fremur
kuldalegt, þá sé veðráttan þar mjög hent-
ug til sólarhitunar húsa. Oft á tlðum, þeg-
ar kalt er úti, er hins vegar heiður himinn
og sólskin, svo hægt er að nota sólina til
upphitunar. Sumir arkitektar eru þó
sagðir hafa gengið helzt til langt í notkun
sólarorkunnar, og það á kostnað útlits
húsanna, sem þeir teikna, en hvað við
kemur húsi Thompsons-hjónanna hefur
hið fullkomna jafnvægi náöst, aö sögn
þeirra, sem séð hafa.
En það er ekki aðeins húsið, sem er fal-
legt, heldur umhverfiðlíka. Húsið stendur
I stórum garði, sem er gerður af náttúr-
unni sjálfri, og I honum rennur lltill lækur,
I fjarska sjást fjallshlíöar huldar sígræn-
um trjám.
Húsið er meö háu þaki, sem nær nokkuö
út fyrir veggina. Af þvl leiðir, aö húsið
virðist stærra en það I rauninni er. Þó er
það sæmilega stórt, eða um 400 fermetrar
að flatarmáli. Allt er gert til þess að láta
húsrýmið njóta sln, og aðeins tvær renni-
hurðir eru á jarðhæðinni, sem loka af
hlutum hússins. Eldhúsið tengist gróður
húsinu, en þar er ekki einungis hægt að
rækta sitthvað til heimilisins og blóm íbú-
unum til ánægju heldur geta þeir setið þar
inni og horft upp I himininn hvort sem er á
nóttu eða degir nokkuð sem hjónin kunna
vel að meta.
Mikil einangrun
A efri hæð hússins eru tvö stór herbergi,
sem ætluö eru fyrir börn hjónanna, sem
eru uppvaxin, en koma stundum til dval-
ar. Þessi herbergi ná aðeins yfir hluta
hússins, eins og væru þau á svölum i þvl
miðju. Þegar ekki er nauðsynlegt að hita
þau upp, eru þau lokuð, en þegar hita er
þörf, eru ópnaöir gluggar inn I húsið
sjálft, og inn i herbergin streymir hlýtt
loft frá öðrum hlutum hússins.
Til að mögulegt sé að láta sér nægja sól-
arorkuna til upphitunar verður að ein-
angra ibúðarhús nægilega vel. 011 ein-
angrun i húsi Thompsons er I hámarki.
Gluggarnir á suðurhliöinni eru aö sjálf-
sögðu með tvöföldu gleri, en gluggar á
norðurhliðinni eru hafðir eins litlir og
frekast er kostur, og þar er þrefalt gler.
Álpapplr er hafður til varnar hitaút-
streymi, þar sem viö á, og einangrunin er
mjög mikil. Meira að segja bílskúrinn er
hafður þannig, að hann skýlir húsinu fyrir
norðvestanvindinum.
Það kostar mikiö að notfæra sér það,
sem á boöstólum er, þegar spara á orku,
og I þessu tilviki hefur það kostað um 2.4
milljónum króna meira en ef byggt heföi
verið venjulegt hús. Það er þó liklega ekki
mikill kostnaðarauki, að minnsta kosti
ekki á islenzkan mæiikvaröa, þar sem
einbýlishús eru farin að kosta þetta 50 til
100 milljónir í byggingu. Þfb
KALDA
VOR
Kalda vor.
Smýgur að heitum hjartarótum
heljargustur, is á fljótum.
Kalda vor.
Litil lömb.
Vitt um land af hungri liða,
lömuð af i kulda að biða.
Litil lömb.
Himir fugi.
Lóan döpur ljóð sin kveður,
litið finnst sem hungrið seður.
Himir fugi.
Hlýi blær.
Menn og dýrin um þig dreyma,
dapurleik þá öllum gleyma.
Hlýi blær.
20.5. 1979.
Eirikur Sigurðsson.
9