Heimilistíminn - 14.06.1979, Síða 17
I hvern púða þurf ið þið ca. 2
metra af 90 cm breiðu efni.
Saumið bútana saman eins og
sýnt er á teikningunni sem
fylgir hér með. Þar er hafður
til hliðsjónar jólatréspoki eins
og þeir gerðust hér fyrr á ár-
um, f lettaðir úr tveimur litum.
En auðvitað þurfið þið ekki
endilega að hafa púðana mis-
lita.
Gott getur verið að sauma
annan púða innan í utan um
svampinn eða það sem þið
ætlið að nota í fyllingu. Þá er
auðveldara að taka ytra borðið
af og þvo það hvenær sem
þörf krefur.
Við skulurn
sauma nafna
dúkana áný
Hér í eina tíð var mjög
algengt að fólk sæti og saum-
aði svokallaða nafnadúka.
Þessa dúka hef ég ekki séð
lengi, en nýlega rakst ég á
mynd af nafnadúk i þýzku
blaði. Hvernig væri nú, að þið
færuð að saf na ykkur nöf num í
dúk. Þið getið keypt ykkur
eitthvert fallegt ef ni, nóg er nú
úrvalið nú til dags, og svo get-
ið þið í byrjun ákveðið, hvort
þið ætlið að sauma dúkinn með
einum lit, eða mörgum.
Gangið frá dúknum að utan,
og byrjið svo að láta vini og
kunningja skrifa nöfnin á
dúkinn. Þið gætuð meira að
segja notað dúkinn sem
Kafaö f
körfuna
afmælisdaga-dúk, þannig að
hver og einn skrifaði fæðing-
ardag og ár á hann, og þá verð-
ur auðvelt að muna eftir af-
mælunum. Það er um að gera
að fólk skrifi nöfnin sín nokk-
uð stórt, því annars er svo
erfitt að sauma þau út. Þið
verðið svo að sauma nafnið
strax eftir að það hefur verið
skrifað á dúkinn, svo það má-
ist ekki út.
Þið gætuð sem allra bezt
farið að nota dúkinn strax og
fyrsta naf nið er komið í hann,
það er engin nauðsyn að hann
sé fullútfylltur. Þá munið þið
líka frekar eftir að láta gest-
ina skrifa, ef hann er á borð-
inu af og til.
Byrjið á nafnadúknum strax
i dag. Þetta er skemmtileg til-
breyting frá hinum hefð-
bundnu kaffi — eða matardúk-
um, og skemmtilegur siður,
sem alls ekki má falla algjör-
lega í gleymsku.
17