Heimilistíminn - 14.06.1979, Síða 26
Varaltturinn borinn á.
Gætirðu hugsað þér að
kyssa einhvern, sem væri með
varirnar ataðar i laxeroliu,
biflugnavaxi eða fitu úr
sauðaull svo ekki sé talað um-
eitthvað enn þá óhugnan-
legra?
Milljónir manna gera það nú
samt hvern einasta dag, og
þykir ekkert óeðlilegt við það.
Það sem þá er kysst er vara-
liturinn.
En glossalegar auglýsingar um
heillandi og glæsilegan varabt eru langt
frá því að minna á nokkurn hátt á það,
Viltu kyssa
varir ataðar
í laxerolíu
eða
ullarfitu?
vaxtegundir, fitur og oliur, sem nota má i
varalit, segir Raymond So.
Fyrirtækið Samfong Cosmetic kaupir
býflugnavaxið frá Þýzkalandi, og önnur
efrii, sem það notar í framleiðsluna, frá
Bandarikjunum og Sviss.
Efni, sem nefnast ceyl alcohol og
lanolin anhydrous, en það kemur úr kind-
um, eru flutt inn til Hong Kong frá Sviss.
Samfong hefur framleitt varalit undan-
farin tíu ár, en það leið heilt ár frá þvi
framleiðslanhófstogþar til rétta blandan
fannst.
— Til eru þrjár meginformúlur fyrir
varalit, eftir þvi hvort hann er mjúkur
miðlungsmjúkur eða fremur haröur, en
svo eru miklu fleiri formúlur, sem notað-
ar eru til þess að fá fram rétta litinn og
samsetninguna, sem ogilm og annað þvi
um likt, sem verður að vera fyrir hendi,
svo varan seljist vel, segir hr. So.
Það þarf ekki mikið rými i verksmiðj-
unni til þess að framleiða varalit, enda
þótt þetta sé ekki sérlega einföld fram-
leiðsluaðferð.
Framleiðslustigin eru þrjú — undir-
búningur efnanna, sem nota á, blöndun
þeirra I varalitar-deigið, ef viö mættum
nefna það svo, og svo formun litanna.
Liturinn fæst fram með alls konar
litunarefnum, sem hafa náð vinsældum
við litun matar, lyfja og snyrtivara yfir-
leitt. Notuö eru efni eins og alumfnum,
strontíum, barium og calcium.
— Við notum einungis litarfeni, sem
ekki bletta varnar segir So.
— Margar ódýrar varalitategundir eru
úr svo lélegum efnum að varirnar verða
upplitaðar eða klessóttar, eftir notkun.
Laxeroliunni er bættút I vegna þess hve
viðloöun hennar er mikil, en hún hefur
hins vegar þann ókost i för meö sér aö hún
sem er að gerast I verksmiðjunum, þar
sem hann er framleiddúr.
í Hong Kong er eitt fyrirtæki, sem
framleiðir varaliti. Það heitir Samfong
Cosmetíc Company og framleiðir snyrti-,
vörur undir merkinu Fambo. Mestur hluti
þess varalitar, sem fyrirtækið framleiðir,
er fluttur út frá Hong Kong, vegna þess aö
ekki er mikil eftirspurn eftir varalit I
Hong Kong sjálfri.
Yfirefnafræðingur fyrirtækisins,
Raymond So, segir, að býflugnavax og
laxerolia séu aðalefnin f varalitnum, og
hægt væri að komast af með þau. En ef
svo væri gert myndi varaliturinn reynast
heldur bragðvondur, og lyktin myndi
heldur ekki falla mönnum í geð.
— Enda þótt þetta séu tvö aöalefnin,
sem við notum, þá eru til yfir eitt hundrað
26
Ur hverju eru varalitirnir raunverulega
búnir til?