Heimilistíminn - 14.06.1979, Side 38
flJCCIJC náttúrunnar
ff
Þótt undarlegt megi virðast er
eitt af hættulegustu skordýrum
heimsins sveipað trúarlegum
ljóma. Kannski er það vegna þess
að það likist mest manni sem
situr á bæn. Kvikindi þetta nefnist
á islenzku bænabeiða en á latinu
Mantis religiose, og I Grikklandi
er það kallað spámaðurinn.
Arabar halda þvi meira að segja
framaðdýrið sit ji ætfð og snúi sér
i átt til Mekka... Til eru yfir eitt
þúsund tegundir af þessu skor-
dýrijflest eru þau I hitabeltislönd-
unum, en þessi tegund sem hér
hefur veriö nefnd lifir i Mið-
jarðarhafslöndunum. Dýrið er 50
til 75 mm á lengd og getur að
nokkru Ieyti flogið. Höfuð bæná-s
beiðunnar er mjög hreyfanlegt og
augun stór. Fremstu fæturnir eru
eins og grip armar sem slá sér ut-
an um fórnardýrin. Stundum
hefur kvikindið veriö nefnt gang-
andi gildran sem enginn sleppur
frá lifandi.
Bænabeiðan skriður oft á tiðum
upp i blóm og annan gróður. Þar
situr hún með framfæturna hálf -
vegis á lofti og heldur þeim upp
að brjóstinu eins og hún sé að
biðjast fyrir. Siðan hefur hún
vakandi auga með þvi hvort ekki
kemur skordýr, sem hún getur
gripið og þá réttir hún frá sér
fæturna og gripur dýrið með þeim
eins og með töng. Evrópska teg-
und bænabeiðunnar er græn á lit
og þvi nær ómögulegt aö greina
hana þar sem hún liggur i leyni I
grasinu.
Aðalfórnardýr bænabeiöunnar
eru flugur, engisprettur, vespur
og býflugur. Þvf er haldið fram
að stærstu bænabeiðurnar ráðist
meira að segja á fugla. Skordýrið
er alltaf hungrað og þó sér I lagi
kvendýrið sem er mjög grimmt.
Um fengitimann verða karldýrin
aö fara mjög varlega en að lokum
gleypa kvendýrin þau einnig.
Eggin eru saman i hylkjum, sem
kvendýriö spinnur um vef eða
púpu. t hverri púpu eru um 200
egg sem siðan eru fest viö steina
eða trjágreinar.
Þríhyrningar
Hér átt þú aö tengja saman
svörtu punktana I þrlhyrning.
GerBu þaB á þann hátt aö einn
hvitur hringur sé i hverjum þri-
hyrningiog 6hvítir hringir séu ut-
an þrihyrninganna.
Lausn á bls. 37
38