Heimilistíminn - 19.07.1979, Side 13

Heimilistíminn - 19.07.1979, Side 13
og i Sviss. Hann hét Howard Tierney og seldi tryggingar. Gene var „uppgötvuö” eins og þaö var kallað i Hollywood i þá daga, þegar hún var i skipulagðri hópferð hjá kvikmynda- félaginu Warner Bros áriö 1938. Hiln seg- ir, aö forstjórinn, Anatole Litvak, hafi litið áhana ogsagt umleið: — Unga kona, þú ættir að leika i kvikmyndum. Þessi stórfallega stúlka fékk þó ekki allt of mörg hlutverk til aö byrja með, og helzt leit út fyrir, að kvikmyndaframleiðend- unum gengi illa að finna hlutverk fyrir þessa 18 ára gömlu leikkonu sina. Þess má geta, aö i samningnum, sem geröur var viðhana, var tekið sérstaklega fram, að ekki skyldi átt við framtennurnar i henni, en þær voru ofurlitið skakkar, og þóttu fremur til prýði en hitt. Fyrstu hlutverkin voru ekki annaö en það, að hún var látin halla sér hér og þar upp að ein- hverjum fallegum bakgrunniog „taka sig út”. Það nægöi þó til þess, aö stjörnu- kóngurinn Howard Hughes veitti henni þegar athygli,ogátti eftir að vera nákom- inn henni i allmörg ár. — Ég held þó, að aöalvandinn hafi veriö sá, segir Gene, — að Howard gat ekki elskað neitt það, sem ekki var meö vél innanborðs. Arið 1941 hljópst Gene á brott til Las Vegas meöfatahönnuðinum Oleg Cassini. Þetta varekki vel ráðið.enda þótt Cassini væri af rússneskum aöalsættum. Hann var álitinn „útlendingur” f Hollywood, og foreldrar Gene voru heldur ekki hrifin af ráðahagnum. Hún var miður sin yfir af- stöðu foreldranna, en um leið varð hún fyrir miklu áfalli, þegar henni varð ljóst, að faöir hennar, sem hún hafði alla tið til- beðið var i þann veginn aðskilja við móö- ur hennar til þess að kvænast f jölákyldu- vinkonu. Fram aö þessuhöföu laun Gene veriö greidd fyrirtæki, sem Howard Tierney stjórnaöi. Mikið strið hófst nú milli feðginanna, þegar Gene varö ljóst, aö faðir hennar haföi eytt þeim 50 þúsund dollurum, sem hún haföi lagt til hliðar. Særö og hrygg sagði Gene skiliö viö fööur sinn, og átti ekki eftir að sjá hann nema einu sinni áður en hann dó árið 1963. Brátt bættist enn ein hörmungin við. Hún hafði fengiö rauöa hunda á skemmti- ferðalagi meðal bandariskra hermanna erlendis, en þetta var i siöari heimsstyrj- öldinni. Genevar ófriskþegar þetta gerð- ist, og afleiöingarnar af sjúkdómnum létu ekki á sér standa. Gene mun bera þess merki til æviloka, hvað á eftir kom, en rúmum fjórum árum síðar varð hún aö koma dóttur sinni Dariu fyrir I skóla fyrir vangefin börn. — Tómleikinn innra meö mér lfktist einna helzt djúpri gjá, segir hún. — Litla stúlkan var dásamleg, með gullna lokka og mjúkt skinn. Hún var I útliti eins og venjuleg litil fjögurra ára gömul stúlka. Ég grét vegna Dariu og yfir sjálfri mér, þangað til ég vissi ekki lengur, hvaöan tárin komu. Daria er nú 35 ára gömul, og enn með andlegan þroska smábarnsins. Hún er á hæli i New Jersey. Ari eftir að litla stúlkan fæddist, kom kona til Gene I veizlu, sem hún var i. Hún sagðist hafa séö hana á skemmtuninni, en hefði þá reyndar átt að vera lokuð inni, vegna þess að hún var með rauða hunda. Hún heföi læözt út, vegna þess aö hana langaöi svo mikið að sjá Tierney. — Ég varð aö gera þaö, sagöi honan hrein- skilnislega. — Þú varst alltaf uppáhalds- leikkonan min. Leikkonan varö orðlaus, og svaraöi engu. A meðan Gene var að leika I Dragon- wyck hitti hún Jack Kennedy, sem kom- inn var úr striðinu, og varð að liggja á sjúkrahúsi mánuðum saman. Hann skildi Hún var ekki fallegt ungbarn, en þriggja, ára var hiin sannarlega farin aö biómstra. Hún á lifandi bróður ogsystur i Fairfield f Connectic ut. tilfinningar hennar, vegna þess að sjálfur átti hann vanheila systur. Hjónaband Gene og Cassini var nú ekkert orðið nema lagabókstafurinn, og brátt urðu þau Kennedy Elskendur. Hann var kaþólskur, hafði mikinn stjórnmálalegan metnað og auk þess mjög yfirráðagjarn. — Þú veizt vel, Gene, að ég gæti aldrei gifzt þér, sagði hann dag nokkurn. — Vertu sæll, Jack, hvislaði hún og gekk út. Cassini og Gene sættust um stundarsak- ir, og Gene eignaðist aðra dóttur, Tinu, sem nú er 30 ára og á heima 1 Paris með eiginmanni si'num og þremur börnum. Hjónabandið endaöi þó meö skilnaði árið 1952. Hún hellti sér enn dýpra niöur i vinn- una, og andlegt jafnvægi hennar var ekki mikið. Annan daginn var hún ofsakát, og þann næsta mjög þunglynd. Hún skemmti sér nú meö þeim mönnum, sem fóru með aðalhlutverkin á móti henni i kvikmynd- Daria dóttir Gene fæddist árið 1943 og var vangefin. Sú staðreynd öðru fremur varð til þess að hiin lagðist f þunglyndi. unum: Spencer Tracy, Clark Gable, Tyrone Power. Hún dansaöi, hló og sigldi um i' Evrópu með Aly Khan prinsi. Henni fannst hann bæði töfrandi og menningar- legur, en um leið „glaumgosi” með svo- litla samvizku. Hún var bæði glöð og ham- ingjusöm með honum. En svo leið tfminn og þaöfór að halla undir fæti fyrir henni og peningaráðin minnkuðu. Hún var ó- hamingjusöm og sneri aftur til Banda- rlkjanna. Þegar svo Humphrey Bogart lék á móti henni í kvikmyndinni The Left Hand of God árið 1955 varð honum ljóst, að leik- konan var alvarlega veik. Hann varaöi Fox-kvikmyndafyrirtækið við, en þar hlustaði enginn á hann. Menn sögðu aðeins — Gene er hress og káL Hún var það á meöan á kvikmyndatök- unni stóö, þar fyrir utan var hún nær hjálparlaus. — A með- an ég var að leika einhvern annan, leiðmér vel, segir húnnú. — En þegar ég Framhald á 26. siðu Oleg Casskii, fyrri maður Gene var liös- foringi i bandariska hernum I sfðari heimsstyrjöldinni. 13

x

Heimilistíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.