Heimilistíminn - 11.01.1981, Síða 1

Heimilistíminn - 11.01.1981, Síða 1
Frá tilraunaeldhúsi VETRAR- SALAT Salat tilheyrir alls ekki sumrinu einvörðungu. Við get um líka búið okkur til ávaxta- og grænmetissalöt að vetrar- lagi. Að vetrarlagi má fá heil- mikið af grænmeti hér á landi nú orðið, þótt flest sé það nokkuð dýrt, þar sem mestur hluti grænmetisins á þeim árs- tíma er innfluttur. Hér er uppskrift að salati, sem búið er til úr gulrótum, rifnum lauk og púrru, og yfir þetta er hellt sósu, sem einnig er heimatilbúin. Gulrótasalat þetta er mjög gott með gróf u brauði, en gróft brauð verður sífellt vinsælla hér á landi, og hveitibrauðin held ég séu á hröðu undan- haldi, svo ekki sé meira sagt. Gulrótasalat. 4 gulrætur, 1 matskeið fínt- saxaður laukur, 1 matskeið fintsöxuð púrra, en meira má þó hafa, ef fólki finnst það gott. Ef ekki eru til gulrætur er oftast hægt að fá hér gulróf ur, sem ekki eru siður góðar. Salatsósa 2—3 matskeiðar af olíu, 2 matskeiðar af sífrónusafa, salt, pipar og 1 matskeið hakkað persille. Takið utan af gulrófunum eða gulrótunum, hvort sem þið veljið í salatið. Rífið svo niður og blandið saman við lauknum og púrrunni. Hellið sósunni yfir og yfir allt saman stráið þið persille. Jólin eru um garð gengin með öllum sinum stóru steikum. Þvi væri ekki úr vegi að lita á uppskriftir, meðal annars af nokkrum

x

Heimilistíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.