Heimilistíminn - 18.01.1981, Page 2

Heimilistíminn - 18.01.1981, Page 2
lýðsfélagsins i Peking hefur iýst þvi yfir, að með tilkomu hjólakerranna skapist verkefni fyrir eitthvað af þeim tiu þúsund atvinnulausu ungmennum, sem nú eru i borginni. En þjónustan verður þó mikið að aukast til þess að af henni leiði umtalsverð atvinnuaukn- ing. Tiu kerrur af þessari gerð voru tekn- Þríhjdlakerruvagnar aftur á götum Peking-borgar. ar i notkun t októberlok og reiknað er Fótstignar kerrur í Peking Hjólakerrur má nú sjá á ný á götum Pekingborgar, en þar hafa þær ekki sést f tvo áratugi. Kerrur þessar eru knúðar áfram af manni, sem stigur hjdl, sem aftan i er fest kerra. Líkjast þær þvi á ýmsan hátt þvi, sem hér áö- ur og fyrr var kallaö rickshaw. Þessir „leigubilar” sem knúðir eru áfram af mannafli voru bannaðir i höfuöborg Kina i kringum 1960, þaö var greinilega gert vegna þess að þeir vöktu óæskilega athygli útlendinga. Kerrurnar voru þó áfram I notkun I flestöllum borgum Kina, enda eru þær bæði ódýrar i rekstri og þægilegar aö ferðast i. Kinverska fréttastofan (Xinhua) gaf nýlega út varlega orðaða tilkynningu þar sem sagði, að hin nýja kynslóð kerrubilstjóranna ætti ekkert sam- eiginlegt með þeirri litilsvirtu stétt, sem rickshaw-dráttarmennirnir til- heyröu, en þeir drógu kerrur sinar um göturmargra borga Kina fyrrá árum. Fréttastofan skýrði frá þvi, að fram- vegis myndu þeir sjá fyrir hinni mjög svo þörfu þjónustu, sem nauðsynleg væri fyrir borgarbúa, en væri ekki að nýju hugsað sem skemmtun fyrir útlend- inga. Itilkynningunni varþó ekkisagt, að útlendingum væri bannað að nota þetta þrihjóla farartæki, en greiðslan fyrir ökuferð er 25 cent eða um 150 krónur á kilómetra. v Kinverjar eru mjög viökvæmir fyrir þvi, að útlendingar liti niður á þá, og þess vegna lagöi fréttastofan sig fram um að réttlæta þessa nýju stétt og endurreisn þessa þrlhjóla farartækis. Fréttastofan skýrði frá þvi, aö fá farartæki væru jafn hentug á þröngum götum Peking-borgar og einmitt þess- ar lipru kerrur. Sagt var, aö mörg dæmi væru um, að konur heföu ekki komist i sjúkrahús i tima til þess aö fæöa þar börn sin, vegna þess aö bflar heföu ekki komist eftir þröngum göt- unum, þar sem þær hefðu buiö. Borgaryfirvöld hafa bannað, aö kerrurnar verði á ferð um aöalgötur borgarinnar heldur eiga ökumennirnir að halda sig i nánd viö járnbrautar- stöðvar og sjúkrahús, þar sem þörf er fyrir flutningatæki, en litið hefur verið um þau til þessa. Qiu Jihding, forsvarsmaöur verka- meö að tala kerruvagnanna verði komin upp i eitt hundraö mjög fljót- lega. Til þess að ekki skapist einhvers konar láglaunastétt kerrustjóra hefur veriðákveöið aögreiða þeim 40 yuan á mánuöi (sem svarar til um 20 þúsund isl. króna). — Þaö eru sömu laun og verkamenn i rikisverksmiðjum fá. Mönnum verður heldur ekki ieyft að erfiða að ástæöulausu i þessari vinnu sinni. — Ef fara þarf langar ferðir, verða ökumenn a6 skiptast á aö stiga dráttarhjólið. Við leggjum þeim til kaki-einkennisbúning ogannan fatnað til þess að halda á sér hita á veturna, þegar kalt er I veðri. Veröi þetta ábatasamur atvinnuvegur munum við einnig geta séö þeim íyrir læknisþjón- ustu, segja forsvarsmenn verkalýðs- félagsins. Borgaryfirvöld segja, að endurkoma kerruvagnanna sé aðeins timabundið fyrirbæri, og þeir verði bannaöir ,,ef og þegar leigubilaþjónustan hefur ver- ið bætt.” Þfb 2

x

Heimilistíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.