Heimilistíminn - 18.01.1981, Qupperneq 6
Sex hús
í bænum eru sex hús, og tvö
þeirra eru alveg eins. Hvaöa hús
eru þaö?
4'
Lausn:
■} 80 o tununjojsijpq qaui
-"ja 11138 ‘uispq naa QBtí[
Myndir úr fanga-
búðum Nazistanna
— á sýningu í Manchestar í Englandi
Þótt langt sé liðið frá
lokum síðari heimsstyrjaldar-
innar er fátt sem fólk hefur
meiri áhuga á enn þann dag í
dag. Frásagnir úr stríðinu
seljast vel/ kvikmyndir eru
gerðar um sama efni, og sýn-
ingar haldnar á minjum og
munum frá stríðsárunum.
Sem dæmi um þetta má nefna,
að nú nýverið var efnt til sýn-
ingar í Manchester i Englandi
á myndum, sem börn og full-
orðnir teiknuðu i fangabúðum
Nazista á stríðsárunum.
Aöur en Nazistar sendu bilhlöss af
Gyöingum til útrýmingarbúðanna i
Auschwitz áriö 1944 fengu þeir börnun-
um gjarnan i heldur blýanta og blöö og
leyföu þeim að teikna aö lyst sinni.
Flest barnanna, sem teiknuðu myndir
i fangabúöunum eru nú látin, en
myndir þeirra eru enn til, og sýna að
þrátt fyrir hörmungarnar teiknuðu
sum börnin myndir, sem sýna óendan-
legt sakleysi þeirra og innri fegurð.
Fram á siöustu stundu létu þau sig
ekki einu sinni þetta hræðilega um-
hverfi hafa áhrif á sig.
A myndasýningunni i Manchester
voru myndir eftir börnin, myndir af
sólaruppkomu, fiðrildum, blómum og
börnum að leik. Börnin trúöu á lifið,
þótt foreldrar þeirra, sem skildu
betur, hvað var aö gerast, heföu glatað
allri trú og lifslöngun. Fulloröna fólkið
fékk heldur ekki að teikna myndir aö
jafnaöi, en fyrir kom, aö einhverjum
tókst aö komast yfir pappirssnepil og
eitthvaö til að teikna meö og þá gat
fólkið tjáö tilfinningar sinar á pappirn-
um. Þaö er skelfilegt aö sjá hversu
ólikar myndir hinna fullorðnu eru
myndum barnanna. A myndum full-
orðna fólksins má sjá deyjandi fólk,
hauga af likum eða fólk á leiö i gas-
klefana.
Nazistar söfnuöu myndum eftir
Gyöinga og komu þeim fyrir i safni,
sem reist var til minningar um kyn-
stofninn, sem þeir voru að reyna að út-
rýma. Safniö er i Prag. Safn þetta var
sett á fót fyrir tilstilli Hitlers sjálfs.
Prófessor Reginald Dodwell, sem
haföi orð fyrir sýnendunum i
Manchester var spurður aö þvi, vers
virði myndirnar á sýningunni væru,
sem og aörar mynáir eftir Gyöinga frá
striðsárunum. Hann sagði: Þær eru
virði sex milljóna mannslifa, eða allra
þeirra Gyöinga, sem drepnir voru á
striðsárunum. Dodwell kom meö 300
myndir til Manchester til þess aö sýna
þar, og er þetta i fyrsta skipti, sem
þessar myndir eru sýndar á Vestur-
löndum.
— Ég valdi myndirnar meö það fyrir
augum, aö sýna andstæöurnar milli
mynda barnanna og hinna fullorðnu
segir Dodwell. 1 myndunum kemur
svo greinilega fram á hvern hátt
börnin skildu tilveruna, og einnig að i
augum fullorðinna voru fangabúöirnar
á borð viö hinn eilifa vitiseld Dantes.
Myndir barnanna eru aftur á móti svo
saklausar og lausar við skilning á
hörmungunum, sem þau bjuggu viö,
aö þær gætu allt eins veriö eftir min
eigin börn og teiknaðar á okkar tim-
um.
Yfir 15 þúsund börn voru sett I
Theresienstadt-búðirnar i Bæheimi.
Hitler vildi láta þessar fangabúðir
vera nokkurs konar sýningarbúðir,
sem áttu að sannfæra menn um, að i
fangabúðum liði Gyðingunum siður en
svo illa. Þar fór fram kennsla i listum
og sagnfræði, auk þess sem fanga-
búðahljómsveit spilaði fyrir gesti og
gangandi.
1 framhaldi af þessu má minna á, að
Karl Weiss, annar bróðirinn i
sjónvarpskvikmyndinni Holocost, átti
að hafa dvalizt i Theresienstadt, og
unnið þar með öðrum listamönnum að
þvi að teikna auglýsingamyndir, sem
áttu að sýna hve vel föngunum leið I
búðunum. Hann og samfangar hans
teiknuðu þó á laun myndir, sem sýndu
hrollkaldan raunveruleikann, eins og
fram kom i myndinni.
Margir listamannanna, sem
teiknuðu myndirnar, sem eru á sýn-
ingunni i Manchester og i safninu i
Prag hafa merkt sér myndirnar. A
þeim standa lika fæðingardagar
þeirra, sem þær teiknuðu og komu-
dagur i Theresienstadt, og stundum er
einnig dagsetningin, þegar lista-
maðurinn yfirgaf þessar „sælubúðir”
til þess að fara til Auschwitz, sem áttu
að vera fjölskyldu- og vinnubúðir, en
reyndust vera útrýmingarbúðir, þar
sem menn voru drepnir i stórhópum
dag hvern.
— Þfb