Heimilistíminn - 18.01.1981, Side 8

Heimilistíminn - 18.01.1981, Side 8
Christine Keeler — vændiskonan þekkta — Almenningur heldur, aö ég sé enn sú sama fagra Keeler, sem stjórnmála- mennirnir dáðust að, og ég eigi hrúgur af peningum. Þvi miöur er staðreyndin önn- ur, segir Keeler sjálf. Christine Keeler er tviskilin og reynir nú af öllum mætti að ala önn fyrir átta ára gömlum syni sinum, en þau verða að láta sér nægja 450 dollara á mánuði til þess að lifa af. Auðurinn er viðs fjarri. Rolls-Royce-bilarnir, sem Keeler ók einu sinni i sjást ekki lengur, né minka- pelsarnir, sem hún klæddist. Hún fékk 90 þúsund dollara fyrir ævisögu sina, og þeim peningum hefur hún einnig eytt. Fyrir sautján árum var nóg að nefna nafnið Keeler, til þess að fólk dytti i hug njósnir, þekkt nöfn, kynsvall, verðbréfa- hrun og þingupplausn, jafnvel stjórnar- slit. Það fór hrollur um siðsama Breta vegna alls þessa. Engin kona hafði valdið jafn mikilli ringulreið frá þvi Wallis Simpson varð til þess að hrifa Játvarð konung og fá hann til þess að afsala sér konungdómi áriö 1936. Þegar Keeler var 21 árs gömul hefði hún getað fengið hvað sem hugurinn girntist vegna þess umtals og frægðar, sem hún aflaði sér eftir að ástmaöur hennar John Profumo sagði af sér sem hermálaráðherra. Henni var meira aö segja boðið 14 þúsund dollara kaup á viku fyrir það eitt að koma fram i næturklúbbi. — Ekkert er liklegra, en að stúlkan sem kollsteypti næstum Bretaveldi, giftist ein- hverjum leiðinlegum milljónamæringi og lifi hamingjusamlega með honum upp frá þvi, sagði einhver i þá daga. — Oðru visi fór, segir Keeler sjálf. Fegurðardisin sem skemmti sér eitt sinn með fina fólkinu átti ekki eftir að verða hamingjusöm, þrátt fyrir það að hún giftist tvivegis. — Stundum verður hún mjög þunglynd og kvartar undan þvi hvernig lifið hefur leikið hana, segir vinur hennar. — Það eina sem hún hugsar nú úm, fyrir utan drenginn sinn, eru peningar. Astarlif Keeler var lýst i brezka þing- inu, og sagt aö þaö ylli manni velgju, en I Hermálaráðherrann John Profumo, sem varð að segja af sér vegna vináttunnar við vændiskonuna. Christine Keeler — stúlkan sem stundaði simavændi. Hér er hún 21 árs og stór- glæsileg. 8 VARÐ STJÓRN AÐ FALLIFYRIR 17 ÁRUM — nú er hún bláfátæk og fegurðin horfin Flestir, sem siitið hafa barnsskónum kannast við nafnið Christine Keeler. Christine Keeler var fræg fyrir það meðal annars að fella brezku stjórnina, þótt óbeint væri. Hún var fræg og falleg gleðikona, sem átti sand af peningum. Hátt- settir stjórnmálamenn dáðust að henni, og greiddu hvað sem var fyrir vináttu hennar og blíðu. En þetta var fyrir einum sautján árum. Nú er Christine Keeler 38 ára gömul. Fegurðin sem eitt sinn var rómuð er að mestu horfin, og peningarnir löngu búnir. i sumar lá við sjálft að Keeler lenti í fangelsi vegna þess að hún skuldaði 500 dollara leigu fyrir íbúðina, sem hún bjó í þá í London.

x

Heimilistíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.