Heimilistíminn - 01.02.1981, Blaðsíða 1

Heimilistíminn - 01.02.1981, Blaðsíða 1
Sunnudagurinn 1. febrúar 1981 8. árgagnur Hitt og þetta gómsœtt í eftirmatinn Oft langar mann til þess að búa til nýjan og góðan eftirrétt með sunnudags- matnum, eða ef eitthvað meira liggur við, t.d. ef haldin er smáveizla fyrir vini eða kunningja. Hér ætl- um við að birta tvær upp- skriftir, Önnur er að góðu ávaxtasalati en hin af eftir- rétti úr kota-osti. Hvort tveggja á að nægja fyrir 4-6. Ávaxtasalat með (likjör-sósu). 1/2 dós af ananas, 2 rauö epli, 2 bananar, 200 grömm af vinberjum, 5 mandarinur, 50 grömm af grófthökk- uöu súkkulaöi, 50 grömm af grófthökk- uöum heslihnetum, 2 1/2 dl rjómi — llkjör. Skerið ávextina niöur i' nokkuð stóra bita. Blandið öllu varlega saman með tveimur göflum. Setjið salatið á kald- an stað. Þeytið rjómann, og bragð- bætið hann með sherrýi eða likjör. Sherrýið þarf að vera sætt. Ef þið hafið ekki safann, sem kemur af ávöxtunum er allt i lagi að blanda rjómanum, hnetunum og ávöxtunum saman, áður en salatið er borið fram, en annars verður að bera rjómann með eins og oft er gert með salatsósur, hvort eð er. Kotasæluréttur. 2 1/2 dl rjómi, 1 msk. sykur, 1 tesk vaniliusykur, 300 grömm af kotasælu, hakkaðar möndlur. Þeytiö rjómann meö sykrinum og vanillusykrinum. Hræriö ostinum saman við. Skreytiö meö söxuöum möndlum. Beriö þetta fram meö saftsósu eöa sultutaui, eöa karamellusósu og hökkuöum hnetum. Einnig er gott aö bera fram jaröarber með kossum eftir rétti. Eins og þið sjáið á myndinni, sem hér fylgir með, er á einum diskinum hálf pera og biti úr kamemberosti. Þetta þykir mörgum á við stóran kökubita eða finan desert i eftirrétt, sérstaklega þó ostaðdáendum og þeim, sem ekki eru mikið fyrir sæt- indi. Llka er hægt að búa til gráðost- hræru og setja i peruhelming. Þá er hræröur saman gráðostur og rjómi, eða sýröur rjómi og sprautað fallega á peruhelminginn, eða bara setja á hann með skeiö, ef þið nennið ekki að hafa mikið fyrir.

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.