Heimilistíminn - 01.02.1981, Blaðsíða 8
Hjúkrunarkona hertogans
af Windsor segir frá:
Ást hertogahjónanna
var alltaf jafn heit
segir, að nýlega hafi hertogafrúin meira
aðsegjasagtvið sig: — Hann hefur aldrei
yfirgefið mig. Hertogafrúin er hálfniræð,
alvarlega veik og illa farin, og ólik þeirri
fallegu konu, sem hertoginn kvæntist
endur fyrir löngu.
Shanley hjúkrunarkona segir ennfrem-
ur: — Uppáhaldsmynd hertogans af þeim
hjónum stendur enn á náttborðinu hans,
þar sem hann hafði hana alltaf. Skjaldar-
merki konungsættarinnar hangur yfir
höfðagaflinum á rúminu hans.
— A hverjum degi eru gluggatjöldin
dregin frá gluggunum i herbergi hertog-
ans, og á kvöldin er aftur dregið fyrir, rétt
eins og venja var að gera, þegar ég kom
fyrst á heimili hjónanna.
Það var i febrúar 1972, en þá hafði her-
toginn nýverið gengið undir mikinn upp-
skurð á „Bandariska sjúkrahúsinu” i
Paris. A meðan á uppskurðinum stóð
rannsökuðu læknar æxli, sem var i hálsi
hertogans, og reyndist það vera krabba-
mein, eins og þeir höfðu óttazt.
— Læknarnir höfðu reiknað með • að
ekkiværihægtaðgera aðgerð á hertogan-
um vegna þessa æxlis, og það reyndist
rétt, sagði hjúkrunarkonan. — Það eina,
sem hægt var að gera var að sjá til þess að
siðustu mánuðirnir, sem hann átti eftir að
lifa, yrðu honum bærilegir.
— Læknarnir sögðu mér, að hann vissi
Oonagh Shanley, einkahjúkrunarkona hertogans af
Windsor var eini utanaðkomandi aðilinn, sem varð vitni
að dauða hertogans, og þá um leið endalokum mestu
ástarsögu aldarinnar. Eins og flestir, ef ekki allir vita,
afsalaði hertoginn sér konungdómi i Englandi fyrir ein-
um 35 árum til þess að ganga að eiga konuna, sem hann
elskaði, hina tvífráskildu Wallis Simpson frá Bandarikj-
unum. Hér á eftir fer viðtal við Oonagh Shanley hjúkr-
unarkonu, þar sem hún segir frá ást Windsorhjónanna,
ástinni, sem aldrei kulnaði, og var jafnsterk daginn,
sem hertoginn lézt, og hún hafði verið, þegar hann gekk
að eiga frú Simpson.
Nú eru liðin átta ár frá' þvi hertoginn af
Windsor dó. Þrátt fyrir það heldur kona
hans fast við þá ákvörðun sina, að hreyfa
ekki við neinu af persónulegúm eigum
eiginmannsins, og allt er eins og það var á
8
heimili þeirra hjóna, daginn sem hertog-
inn skildi við.
Oonagh Shanley, sem hugsaði um her-
togann siðustu mánuðina, sem hann lifði,
og býr enn með hertogafrúnni i Paris,