Heimilistíminn - 08.02.1981, Blaðsíða 1
ÞRJÁR
RISA-
STÓRAR
VEIZLU-
TERTUR
Enn er töluverður timi til
páska, en þá standa margir
i stórræðum vegna ferm-
inga. Oft eru gestir i
fermingarveizlum margir,
og þess vegna getur verið
gott að hafa stórar og mikl-
ar tertur, til þess að þurfa
ekki að baka margar smá-
ar. Þið, sem eruð sérstak-
lega myndarleg, ættuð að
fara að huga að uppskrift-
um fyrir fermingarnar, og
svo getið þið lika farið að
kanna, hvort ekkisé ráð að.
baka eitthvað af tertubotn-
unum i frystikistuna, þótt
ekki verði gengið frá þeim
eða þær skreyttar fyrr en
liða tekur á veturinn.
Hér eru uppskriftir aö þremur mikl-
um og góðum tertum. Þær ættu að
hæfa vel i stórveizlur, vegna þess að úr
þeim má fá 12-24 sneiðar.
Gamaldags lagterta
Uppskriftin: 3 egg, 150 grömm syk-
ur, 75 grömm hveiti, 1 tsk. lyftiduft.
Fylling I: jarðarberjahlaup, 8 dl
jarðarberjasafi, 2 dl vatn, safi úr einni
sitrónu, 12 matarlimsblöð. Fylling II:
4 dl rjómi, 1 msk. sykur 2-3 msk romm
eða púns.
Þeytið egg og sykur létt, bætið hveiti
og lyftidufti út i. Skiptið deiginu i
þrennt og setjið i þrjú tertuform. Mun-
ið að smyrja formin og jafnvel strá
innan i þau hveiti. Bakið botnana i 225
stiga hita i ca. 8 minútur.
Látið botnana kólna. Hitið á meðan
jarðarberjasafann, vatnið og sitrónu-
safann. Látið matarlimsblöðin út i, en
munið að hafa fyrst látið þau liggja i
vatni. Látiðnú safann i tvö tertumótin,
sem botnarnir voru áður bakaðir i.
Látið kólna.
Þessu næst þeytið þið rjómann og
sykurinn og bragðbætið með romm-
inu, ef þið viljið. Leggið tertubotnana
saman með jarðarberjahlaupinu og
rommrjómanum á milli laga. Skreytið
tertuna með þeyttum rjóma og nýjum
eða niðursoðnum jarðarberjum, svip-
að og gert hefur verið á myndinni, sem
hér fylgir með.
Þetta er mjög góð terta, sem á að
nægja tólf manns.
Vinarsúkkulaðiterta
Uppskrift: 200 grömm af blokk-
súkkulaði, 100 grömm af möndlum,
(ca 80 stykki) 130 grömm af smjöri, 1