Heimilistíminn - 15.02.1981, Page 9
og Utspennt er hún um 115 cm f þvermál. 1
henni eru 10 teinar.
Rannstíkn Cutlers á Zapruder-kvik-
myndinni sjfnir, aö regnhlif Regnhlífar-
mannsins var 7.5 cm styttri og ca 18 cm
minni í þvermál, en með tíu teina.
— Augljóslega er um tvær regnhlifar að
ræða. SU, sem sýnd var I Washington árið
1978 er ekki sU, sem notuð var, segir Cutl-
er.
— Skipt hefur veriö á regnhlifum, en lft-
iðbara á myndirnar. Þær segja sannleik-
ann. Regnhlífarmaðurinn á myndunum er
örfhentur, og rUmlega tvltugur. Witt er
hins vegar rétthentur, og var 38 ára, þeg-
ar Kennedy var myrtur.
Orinni var skotið úr elektróniskri byssu,
og Ur henni kom hvorki reykur né hljóö.
Hún hæfði forsetann i tæpra 27 metra fjar-
lægð og af miklum krafti.
Cutler segir, að læknar, sem sáu bana-
sár forsetans, og rannsökuðu hann hafi
tekið eftir li'tilli kringlóttri stungu á hálsi
hans. Stungan var um það bil 5 mm f
þvermál — heldur minni um sig en strá,
sem fólk drekkur með kóka kóla — og ná-
kvæmlega jafnstórt um sig og örvarnar,
sem CIA hefur látið framleiða.
Þegar læknar krufðu lik forsetans að
kvöldi 22. ntívember drógu þeir Ur hálsi
forsetans „flaug”, og afhentu FBI-mönn-
unum Francis O’Neill og James Sibert.
Cutler heldur þvi fram, að þá hafi yfir-
menn I Washington gefið skipun um, að
ekki skyldi frá þessu skýrt. Upphaflegu
minnisblöðin, sem skrifuð voru, vegna
krufningar JFK voru brennd og gefin var
ný skýring á gatinu á hálsi forsetans og
' sagt, að þar hefði kúlan, sem hæfði forset-
ann komið Ut aftur.
Höldum nú áfram að heyra skýringu
Cutlers á þvf, hvernig forsetinn var skot-
inn og lamaður með áðurnefndri ör, áður
en Oswald hóf að skjóta með riffli sfnum:
— Vitni, sem voru með forsetanum f
bílnum bera, að hann hafi ekki gefið frá
sér minnsta hljóð, þegar kúlurnar hæföu
hann, en hins vegar veinaöi Connally
fylkisstjtíri eins og stunginn gris.
Um leið og skothriðin hafði dunið á JFK
hlupu skelfingu lostnir lögregluþjónar og
fjöldi áhorfenda I skjól, af ótta viö, að
önnur hríð fylgdi á eftir. Regnhlifar-
maðurinn einn sat hreyfingarlaus á gang-
stéttarbrúninni.
Við hlið hliö Regnhlifarmannsins sat
allan timann þeldökkur maður, sem
mannfræðingar telja, að geti hafa verið
KUbubUi.
CIA-menn hafa viöurkennt, aö þeir hafi
látið finna upp og framleiöa örvabyssur,
en hafa aftur á móti harðneitað allri aðild
að morðinu á forsetanum.
Golz blaðamaður I Dallas segist ekki
vera sammála Cutler um, aö samsæri
hafi verið gert til þess að ráða forsetann
af dögum, en hann segir þó, að Cutler hafi
unniö vel og lengi að rannsókn málsins.
Hann er einnig mjög áreiðanlegur á sinu
sviöi, að sögn Golz. Þfb
A neðstu myndinni sést Regnhlffar-
maðurinn og féiagi hans sitja I rólegheit-
um á gangstéttarbrUninni þrátt fyrir
ringulreiðina sem rikti i kringum þá, eftir
að skotið haföi veriö á John Kennedy for-
seta.
Bíll forsetans fór fram hjá Regnhlffar-
manninum á Dealey Piaza og þaðan er
efsta myndin.
A næstumynd má sjá bæöi lögregluþjóna
og skelfingu lostna áhorfendur hlaupa I
skjól.
9