Heimilistíminn - 15.02.1981, Qupperneq 15
UUUUUU náttin unnar
Lyru-fuglinn fallegi i
Ástraliu hermir allra dýra
bezt eftir. Hann likist óðins-
hönum að stærð og likams-
byggingu, en stélið hangir
þó niður svona stundum að
minnsta kosti. Þegar fugl-
inn tekur til við að leika sér
og látast sveiflar hann sex-
tán stélfjöðrum ótt og titt i
kringum sig, og mynda
fjaðrirnar boga svipaðan
þeim, sem rammar inn
grisku lýruna, og af þvi hef-
ur fuglinn fengið nafnið.
Skrautlýrufuglinn Menura Novae-
hollandise, býr til nokkurs konar leik-
vang á fengitimanum og þangaö lokk-
ar hann til sin eins marga kvenfugla
og hann frekast getur. Siðan tekur
hann til við að dansa og hreyfa sig á
hinn undarlegasta hátt, og er þetta
ÞU hefur taiaft of mikift. Þaft er
komin málmþreyta I fyllingarn-
ar.
glæsilegt sjónarspil á að horfa. Af og
til heyristsvo hin sérkennilega og ljóð-
ræna rödd hans. Fuglinn hermir
gjarnan eftir gelti i hundum, hneggi
hesta og söng annarra fugla, og einnig
getur hann hermt eftir eimpipum lesta
og verksmiöjuflautum.
Skrautlýrufuglinn kann vel að meta
það, þegar fólk virðir hann fyrir sér og
dáistaðhonum,ogheldur hann sig þvi
oft i nágrenni við stórborgir. Fuglarnir
eru mjög vinsælir og oft má sjá
myndir af þeim á frimerkjum og á
merkjum alls konar.
Kvenfuglinn verður sjálfur að
byggja hreiðrið og annast ungana.
Hreiðrið er stórt, heill haugur af grein-
um, og inngangurinn er á einni hlið-
inni. Efst ofan á hreiðrinu liggur mjög
of stórt laufblaö. Venjulega verpir
kvenfuglinn aðeins einu eggi, og ung-
inn er i hreiðrinu i átta vikur eða þar
um bil. Móðirin hugsar þó miklu leng-
ur um hann og hjálpar honum lengi
eftir að hann er floginn úr hreiðrinu.
Þegar hætta er á ferðum, gefur
kvenfuglinn frá sér sérstakt merki,
aðvörunarmerki, og þá er unginn ekki
lengi að finna sér felustað og þar ligg-
ur hann hreyfingarlaus. Vegna þess
hve fuglinn er með stutta vængi getur
hann nær ekkert flogið, en á hinn bóg-
inn hoppa lýrufuglarnir grein af grein
og eru meistarar i svifflugi.
Lausn
á
síöustu
kross-
gátu
15