Heimilistíminn - 08.03.1981, Side 6

Heimilistíminn - 08.03.1981, Side 6
Sá, sem fyrstur hóf að nota orðið stress var prófessor Hans Selye. Hann segir, að stress sé i rauninni svörun likamans við öllum þeim verkefnum, sem honum er ætlaðaðleysa. Þaðskiptirekkimáli hvort um andlegt eða likamlegt verkefni er að ræða, likaminn bregzt við þvi á liffræði- legan hátt. Engu breytir hvort fólk lendir i einhverju skemmtilegu eða leiðinlegu. Lifið er starfsemi, sem tekur á sig stöð- ugar breytinga, segir Bensabat. Stress fylgir þvi, ef fólk þarf að aðlaga sig kulda eða hita. Frumstæðir þjóðflokkar þekkja stress ekki siður en við, þessi minna frumstæðu, eða þróaðri þjóðflokkar, en það er streita, sem fylgir hungri, sjúk- dómum eða öðrum likamlegum erfið- leikum. I iðnaðarþjóðfélögunum birtist streitan miklu frekar i andlegum vanda- málum. Sjö af hverjum tiu Breytingarnar eru svo örar i kringum okkur, að við eigum erfitt með að fella okkur við þær. Þannig hefur streitan orðið að þvilfku vandamáli i iðnaðarlöndunum, að af hverjum tiu sjúklingum, sem leita læknis er fullvist að sjö þjást af streitu, að þvi er Bensabat segir. Likaminn bregzt á líffræðilegan hátt viðstreitunni. Hormón taka til sarfa sam- kvæmt boðum, sem þeim berast frá heil- anum. Sykur og fita losna og veita okkur kraft. Igamla daga var fólk aðallega vart streitunnar vegna likamlegra vanda- mála, og þess vegna fór krafturinn sem leystist úr læðingi i likamlegar gerðir. Fólk varð að berjast fyrir lifinu. Þegar nú streitan stafar helzt af sálrænum vanda- málum safnast krafturinn fyrir i likam- anum i stað þess að vöðvarnir noti hann. Þannig getur fólk fengið likamleg vanda- mál af þvi að þjást af streitu. SJÖ AF HVERJUM TÍU ÞJÁST AF STREITU Hið jákvæða og hið neikvæða Það þjást sem sagt allir af streitu, en það er þó ekki það sem fyrir okkur kemur, sem skiptir máli, segir Bensabat, heldur það hvernig við bregðumst við þvi sem fyrir kemur. Viðbrögð okkar ráða þvi, hvort streitan verður til góðs eða ills Til dæmis getur sumarleyfi haft streitu- myndandi áhrif á framkvæmdastjóra, sem vanur er að vera stöðugt á fartinni vegna starfa sinna. I sumum tilfellum getur það haft góð áhrif á fólk að hækka i embætti, en á aðra hefur þetta slæm og Nýlega kom út i Frakklandi bók um fyrirbæri, sem við i daglegu tali köllum stress, en heitir vist á betra máli streita. Höfundar bókarinnar eru tveir sérfræðingar, Soly Bensabat og Hans Selye, en bókina hafa þeir reyndar skrifað i samvinnu við hóp annarra þekktra visindamanna. í viðtali, sem birtist við Bensabat i franska vikuritinu L’Express segir hann m.a. að streita sé fyrirbæri, sem allir þjást af. Fólk verði bara að læra að lifa með streitunni. , ' í '-V .' v:;v^.,Í5- ...... i. & 6

x

Heimilistíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.