Heimilistíminn - 29.03.1981, Blaðsíða 5
Nunna
sigrar
í
mara-
þon-
hlaupi
Hér tekur systir Marion á rás meö klausturkirkjuna I baksýn
íþróttaafrek geta ekki verið
heilög, og það veit dóminika-
systirin Marion Irvine mæta
vel. Fyrir tæpu ári setti hún
meti mararþonhlaupi kvenna,
sem komnar eru yfir
fimmtugt. Þetta tókst henni I
fyrsta skipti, sem hún tók þátt
i þessari keppni. Þremur
mánuðum siðar tókst konu frá
New Jersey að bæta met henn-
ar, sem hafði verið þrjár
klukkustundir og tvær mínút-
ur. Systir Marion veit ekki,
hvort hún á eftir að verða met-
hafi á ný, en hún hefur þó
strengt þess heit, að hlaupa
vegalengdina á innan við
þrem klukkustundum.
Systir Marion er 51 árs gömul og hefur
verið I reglunni i 33 ár. Árið 1978 tók hiln
til viö að þjálfa hlaup, en þó ekki til þess
aö öölast neina andlega uppljómun,
heldur til þess eins að losna við spennu.
I byrjun komst hún ekki nema tvær míl-
ur (3.2 kilómetra).
— Ég hljóp áreiðanlega ekki meira en
15% vegalengdarinnar, hitt gekk ég, segir
hiin — en þegar ég var komin á leiðarenda
leið mér eins og ég væri sannkallaður jöt-
unn. Þegar vikurnar liðu tók ég eftir því,
að ég komst hraöar og lengra en flestir
aðrir i' kringum mig, og án þess að leggja
sérlega mikið á mig. Svo var það
sunnudag einn að hún ákvaö að taka þátt i
keppni, þar sem hlaupa átti niu og hálfa
milu eða riima 16 kilómetra. Til þessarar
keppni var efnt af kliibbi i heimabæ nunn-
unnar. — Þegar ég kom i mark birtist ein-
hver með borða, sem var hengdur á mig,
heldur hiín áfram. — Þar með var ég búin
að fá hlaupabakteriuna fyrir alvöru.
Systir Marion var eitt sinn kennari, en
nd fer hiín á milli 17 skóla i sókninni i San
Rafael i' Kaliforniu og ræðir við fólk. Hún
stundar vinnu sina iklædd hnésiðum
nunnubUningi, en er með Iþróttatöskuna á
öxlinni. A hverri viku hleypur hUn að
minnsta kosti 120 kilómetra, og oft á tið-
um hleypur hUn um klettóttar hæðirnar
bak við nunnuklaustrið. — Ég held að I
5