Heimilistíminn - 05.04.1981, Page 1
t»að, sem þið þurfið til
þess að geta bakað þessa
glæsilegu páskatertu er
þetta: f]ögur egg, 2 dl
sykur, 1 dl hveiti, 1/2 dl
kartöflumjöl, 1 tsk lyftiduft,
fínrifinu börkur af 1/2
sitrónu.
í fyllinguna notið þið: vanillukrem, 3
dl rjómi, 2 eggjarauöur, 1 1/2 msk
sykur, 1 msk maisenamjöl 50 grömm
smjör eöa smjörliki, 1—1 1/2 msk
vanillusykur.
t aðra fyllingu, sem einnig er höfð i
tertuna notið þið: 1/2 dós af
aprikósum, 1 1/2 dl aprikosulög, 2 tsk
matarlimsduft, eða matarlimsblöð
eftir þörfum, og niðurrifnar möndlur.
Byrjið á þvi að þeyta saman egg og
sykur. Blandið þurrefnunum saman
við og einnig sitrónuberkinum. Hrærið
vel saman.
Bakið i 200 stiga heitum ofni i ca. 30
míniítur. Látið kökuna kólna á grind-
um.
Vanillukremið er búið til á þennan
hátt. Blandið saman rjóma, eggja-
rauðum, sykriog maisenamjöli. Sjóðið
þetta og hrærið kröftuglega i á meðan,
en hafið hitann ekki of mikinn.
Hrærið smjöri og vanillusykri
saman og hrærið þvi svo út i kremið,
áður en það er orðið kalt.
Hellið safanum af aprikósunum, og
notiö 1 1/2 dl i einskonar hlaup. Leysið
upp matarlimið og hellið saman við
safann.
Skerið kökuna i þrjá jafna botna.
Leggið saman tvo fyrstu botnana með
vanillukremi á milli, og á milli annars
og þriðja botns notið þið bæði vanillu-
krem og þeyttan rjóma. Raðið nú apri-
kósunum ofan á tertuna og hellið hálf-
stifnuðum aprikósusafanum yfir
ávextina. Skreytið meö möndlum.