NT - 26.04.1984, Side 1
Geisla-
virk efni
á Islandi
Liverpool í úrslit
■ Liverpool fagnar sigri gegn Dýnamó Búkarest í
Rúmeníu í gærkvöld. Það eru markvörðurinn
Bruce Grobbelaar, Craig Johnston og markaskorar-
inn mikli, Ian Rush sem sjást hér yfirgefa leikvöllinn
í hátíðaskapi. Ian Rush skoraði bæði mörk Liver-
pooi í 2-1 sigri, og Liverpool leikur til úrslita gegn
AS Roma í Róm í vor í Evrópukeppni bikarhafa.
Sjá EM í knattspyrnu á íþróttasíðum, bls. 26-27.
Símamynd Polfoto.
„Kreditkorta-
skatturinn“
nemur 65
■ ■■■ r
New York
Helgi
vann
- æsispenn-
andi biðskák
hjá Jóhanni
■ Helgi Ólafsson vann
Bandaríkjamanninn
Edward Rumkin í 23
leikjum í annari umferð
skákmótsins í New York í
gær. Jóhann Hjartarson
tefldi æsispennandi skák
við Walter Browne og fór
skákin í bið í tvísýnni
stöðu þar sem Browne
hefur peð yfir.
I samtali við NT í gær-
kvöldi sagði Helgi Ólafs-
son að skák hans hefði
verið mjög auðveld enda
er Rumkin ekki hár á
stigum. Skák Jóhanns
hefði hinsvegar verið æsi-
spennandi: Browne lenti
snemma í vandræðum og
síðan í miklu tímahraki, í
lokin, sem þó virtist frekar
hjálpa honum þar sem
Jóhann tefldi þá nokkuð
ónákvæmt. Biðstaðan er
eins og áður sagði tvísýn
en Helgi taldi Brown þó
hafa eitthvað meiri mögu-
leika.
Staðan á mótinu er óljós
vegna biðskáka en Lev
Alburt er þó með 2 vinn-
inga eftir tvær skákir. Með
1 V5 vinning eru síðan þeir
Portisch, Adorjan, Lomb-
ardy, Bekon ogHelgi.
Perlum íslenskrar myndlistar:
Bjargað frá eyðileggingu
- hafa verið í vanhirðu í húsakynnum háskólans í áratugi.
■ Að minnsta kosti átta mynd-
ir eftir marga af fremstu málur-
um þjóðarinnar hafa í vetur
verið í viðgerð hjá Morkin-
skinnu, listaverkaviðgerðar-
verkstæði við Hverfisgötu, eftir
að þær höfðu verið á flakki um
húsakynni háskólans um ára-
raðir sumar frá því um 1920, í
algjörri vanhirðu. Myndirnar
eru nú eign Félagsstofnunar
stúdenta, en voru flestar gjafir
frá listamönnum sjálfum til stú-
denta á sínum tíma.
Myndirnar eru eftir Kiarval,
Blöndal, Scheving, Asgrím
Jónsson, Jóhann Briem, Guð-
mund frá Miðdal, og Norðmann
að nafni Alfred Harold Urness.
Að sögn Ríkharðs Hördal, við-
gerðarmanns í Morkinskinnu,
voru sumar myndirnar mjög illa
farnar. Til dæmis hafði verið
skvett yfir þær brennivíni, þær
rifnar og yfir eina Þingvallamynd
eftir Asgrím Jónsson, hafði ein-
hver, sennilega gestur á Garðs-
balli, málað nafnið sitt með
stórum stöfum í annað hornið
að ofan. Talið er að það hafi
gerst fyrir að minnsta kosti 40
árum.
Talið er að stúdentar hafi
fengið í áranna rás mikinn
fjölda listaverka að gjöf og að
stór hluti þeirra sé horfinn. Til
dæmis mun Jóhann Briem hafa
verið kostgangari í Matsölu
stúdenta um tíma og þá hafa
gefið stúdentum einar 20 litlar
vatnslitamyndir, sem nú eru all-
ar horfnar.
Sjá nánar bls. 5.
David
Kennedy
finnst
■ David Kennedy, sonur Ro-
berts heitins Kennedy, fannst í
gær látinn í hótelherbergi sínu
þar sem hann dvaldist á Palm
Beach. David hafði lengi átt við
mikil vandamál að stríða vegna
eiturlyfjaneyslu. Frændi
Davids, bandarríski öldungar-
deildarþingmaðurinn Edward
Kennedy sagði í yfirlýsingu sem
hann gaf út í Washington og
þetta væru erfiðir tímar fyrir
fjölskylduna.
Sjá nánar bls. 25.
látinn
Helga Melsteð sigraði
■ Úrslit í keppninni „The
Face Of The 80’s á íslandi voru
tilkynnt í ölstofunni á Hótel
Sögu í gærkvöldi. Það var Helga
Melsteð sem sigraði í þetta sldpt-
ið. Lacey Ford, dóttir Ford-hjón-
anna sem eiga og reka Ford-
fyrirsætufyrirtækið kom hingað
til lands til að velja úr 200
þátttakendum í keppninni, og
hún tilkynnti úrslitin.
Skömmu eftir að úrslitin voru
tilkynnt náði NT tali af sigurveg-
aranum. Hún verður 17 ára í
ágúst og vinnur í versluninni
Quadro. Hún var eins og gefur
að skilja í sjöunda himni og
örlítið utan við sig.
- Hvernig líður þér.
„Alveg stórvel“.
- Bjóstu við þessum úrslitum?
„Aldrei“.
- Var þetta erfitt?
„Ég titraði öll núna. Þetta var
mjög stressandi".
- Af hverju fóstu úr í þetta?
„Allar vinkonur mínar voru
að reyna að troða mér í þetta í
fyrra. Svo fór ég í þetta núna
með þeirra hjálp“.
- Býstu við að vinna aðal-
keppnina?
„Maður gerir sitt besta“.
■ Hér sjást þau Helga Melsteð
og Páll Þorsteinsson á því
augnabliki þegar sá síðarnefndi
tilkynnti að Helga hefði sigrað í
Ford-keppninni.
NT-mynd Árni Sæberg.
Úrslitakeppnin fer fram í
Bandaríkjunum í nóvember og
er mikill viðburður sem sjón-
varpað er um öll Bandaríkin.
Reiknað er með að um 50
milljónir manna horfi á keppn-
ina í ár, eins og í fyrra. NT
óskar Helgu til hamingju með
sigurinn og óskar þessari glæsi-
legu stúlku velgengni í keppn-
inni í októbcr.
hærrienleigafyrir
verslunarhús-
næði - sjá bls. 3