NT - 27.04.1984, Qupperneq 1
Vestmannaeyjakaupstaðurvinnurmál fyrir Hæstarétti:
■ Pólitískur flóttahundur
var það fyrsta sem ritstjóm-
armeðlimum NT datt í hug,
þegar þeir litu þessa mynd
af sundþreyttum hundinum
og rússneska olíuskipinu í
baksýn. Hið sanna mun
hins vegar vera að venju-
iegur ólöglegur reykvískur
hundur mun eiga í hlut, að
vísu sundelskur.
NT-mynd Ámi Sæberg.
New York mótið:
Jóhann
sigraði
- jafntefli hjá
Helga
Óiafssyni
■ Jóhann Hjartarson
sigraði Trosclair í 39
leikjum í 3. umferð al-
þjóðlega skákmótsins í
New York í gær. Jóhann
lék svörtu mönnunum.
Helgi Ólafsson lék hvítu
mönnunum á móti Banda-
ríkjamanninum Lombardi
og sömdu þeir um jafntefli
eftir 27 leiki.
Helgi Ólafsson sagði í
samtali við NT, að þeir
Lombardi hefðu teflt
kóngs-indverska vörn og
skákin hefði verið tiltölu-
lega daufleg.
í 2. umferð tapaði Jó-
hann biðskákinni við
Brown, eftir mjög sér-
kennilega stöðu.
Efstir á mótinu, með 3
vinninga, eru Kavalek og
Dzindzihasvili, í 3.-5. sæti
eru Adorjan, Alburt og
Federowicz með 2 xh
vinning. Helgi er með tvo
vinninga og Jóhann 1 Mt,
Mátti leggja á gatnagerðargjald
27 árum eftir að gatan var lögð
■ Vestmannaeyjakaupstaður hefur unnið prófmál í Hæstarétti
sem snerist um hvort honum væri stætt á að leggja svokölluð
B-gatnagerðargjöld á húseigendur vegna endurnýjunar á malbikuð-
um götum sem lagðar voru fyrir gildirfíma laga um þetta gjald. Málið
var höfðað gegn Kaupfélagi Vestmannaeyja við Bárugötu, sem
vann það fyrir héraðsdómi. Meiríkluti hæstaréttardómara, sem
fjölluðu um málið dæmdu Vestmannaeyjabæ í hag, en tveir skiluðu
sératkvæði þar sem þeir töldu bænum ekki heimilt að leggja þetta
gjald á.
Bundið slitlag var lagt á Báru-
götu í Vestmannaeyjum árið
1957 en það slitlag var orðið
ónýtt fyrir eldgosið 1973. Gatan
var endurnýjuð, lögð slitlagi og
nýjar gangstéttir lagðar við hana
á árunum 1977-81. Gatnagerð-
argjald var ekki lagt á vegna
lagningar slitlagsins 1957 og
slíkt gjald hefur aldrei verið
innheimthjá Kaupfélaginu fyrr.
í dómi Hæstaréttar segir að
álagning gatnagerðargjalds
vegna framkvæmdanna 1977 til
1981 brjóti ekki í bága við lög
sem sett voru um þetta efni árið
1974. Gatnagerðargjaldið sem
eigendum fasteigna við götuna
var gert að greiða nam aðeins
hluta af heildarkostnaði við
lagningu slitlags og gangstétta.
Verði því ekki talið að álagning-
in brjóti í bága við álagningar-
reglu nefndra laga.
Hæstaréttardómarar voru
Þór Vilhjálmsson, Björn Svein-
björnsson, Guðmundur
Jónsson, Halldór Þorbjörnsson
og Magnús Þ. Torfason. í sérat-
kvæði Guðmundar og Magnús-
ar telja þeir að ákvæði laganna
frá 1974 og 1975 veiti ekki
heimild til álagningar svo-
nefnds B-gatnagerðargjalds til
að leggja bundið slitlag að nýju
á götur sem lagðar höfðu verið
fyrir gildistöku laganna og eigi
því að staðfesta héraðsdóminn.
Sautján
létust og
þrjátíu
slösuöust
■ 17 manns að minnsta kosti
létust og rúmlega 30 slösuðust
í árekstrí jámbrautarlestar og
fólksflutningabifreiðar í Port-
úgal í gær. Ekki er talið ólík-
legt að tala látinna eigi eftir að
hækka enn.
Sjá frétt á bls. 25.
Reagan stoltur af góð-
um tengslum við Kjnverja
Sja erlendar fréttir á blaðsíðu 23
SimMnrnd: POlfOTO