NT - 30.04.1984, Page 1
Stálfélagið selur allar
brotajárnsbirgðirnar!
„Þýðir ekki að við séum að gefast uppM
■ Sindrastál hf., hefur keypt allar brotajárns-
birgðir Stálfélagsins hf., utan nokkur skipsflök
sem liggja á eiðinu milli Gufuness og Geldinga-
ness. Hefur Sindrastál þegar unnið úr járninu
150 tonn af 1. flokks stáli, sem búið er að flytja
úr landi, og á ennþá eftir að vinna úr rúmum
þúsund tonnum.
„Þetta þýðir alls ekki að við móti höfum við aldrei verið
séum að gefast upp - þvert á bjartsýnni en einmitt núna,“
sagði Sigtryggur Hallgrímsson,
starfsmaður Stálfélagsins, í
samtali við NT í morgun. „Við
höfum enn sem komið er ekki
aðstöðu til að vinna járnið
sjálfir. Og meðan svo er hefur
verið stofnað til ákveðins sam-
starfs við Sindra."
- Er ekki skortur á brota-
járni ykkar stærsta vandamál?
„Alls ekki. Samkvæmt okk-
ar skýrslum og rannsóknum
eru svo miklar birgðir af jámi
í landinu að við náum ekki að
nýta það sjálfir allt. Þetta ligg-
ur um allt öllum til óþurftar.“
Sigtryggur sagði, að meðan
fyrirtækið hefði ekki yfír að
ráða eigin járnbræðslu yrði
það væntanlega að flytja úr
landi nokkurn hluta af því
brotajámi sem safnaðist
saman. Hann sagðist búast við,
að það yrði búið að koma sér
upp járnbræðslu eftir eitt til
tvö ár. '
■ „Ég held, að það sé bara
alveg stórfínt, þetta er myndar-
stelpa,“ sagði Gísli Böðvarsson,
þegar hann var spurður hvernig
það væri að vera líklega yngsti
langafi heims.
Gísli var ekki nema 51 árs,
þegar dótturdóttir hans eignað-
ist dóttur fyrir tæpu ári. Sú
stutta heitir íris Osk og býr
suður í Njarðvík. Það var ekki
annað að sjá, en að hún væri
líka afskaplega ánægð með lang-
afa sinn, þegar NT-menn
smelltu mynd af þeim í gær.
NT-mynd Róbert
Sjá nánar á bls. 2
Sigurjón Jóhannsson:
Fékk menningar verð-
laun Þjóðleikhússins
Kvótamarkaðurinn blómstrar:
New York:
Jafntefli
hjá Helga
ogJóhanni
■ Helgi Ólafsson gerði
tvö jafntefli á skákmótinu
í New York um helgina og
er nú með 3 vinninga af 5
mögulegum. JóhannHjart-
arson tapaði annarriskák
sinni en gerði jafntefli í
hinni og er með 2 vinn-
inga. Efstur á mótinu er
Dzindzihavil með 4'A
vinning.
Stór-
slasaður
■ Ungurmaðurslasaðist
alvarlega á höfði, þegar
hann missti vald á torfæru-
hjóli sínu í grennd við
Korpúlfsstaði laust fyrir
kl. hálf tíu í gærkvöldi.
Maðurinn bar hjálm að
sögn logreglunnar en mun
engu að síður hafa hlotið
svo alvarlegan áverka að
hann þarf að gangast undir
uppskurð.
Óveiddur þorskur seldur
á fjórar krónur kílóið!
■ Þorskurinn í sjónum gengur
kaupum og sölum fyrir ótrúlega
háar upphæðir. Þess eru dæmi
að útgerðarmönnum hafi verið
boðnar fjórar krónur fyrir kflóið
af óveiddum þorski. Þetta er
næstum þríðjungur af því verði
sem fæst fyrir þorskinn þegar
búið er að draga hann upp úr
sjónum. Gangverðið mun þó
liggja nokkru neðar eða á bilinu
2-3 krónur.
NT hafði um helgina tal af
mörgum aðilum um allt land og
spurðist fyrir um söluverð kvót-
anna. Þetta mál er að vísu
allviðkvæmt af ýmsum ástæðum
og menn þar af leiðandi fæstir
fúsir til að láta nafns síns getið
í sambandi við upplýsingar um
þessi mál, en engu að síður
tókst blaðinu að fá nákvæmar
upplýsingar um þetta efni sem
byggja á traustum heimild-
um.
Flestir útgerðarmannanna
viðurkenndu fúslega að þeir
væru reiðubúnir að greiða 2-3
krónur fyrir kílóið. Hins vegar
vildu fæstir þeirra viðurkenna
að þeir hefðu þurft að greiða
nokkuð fyrir aukakvótann fyrr
en gengið hafði verið á þá. Kom
þá í ljós að flestir þeirra höfðu
hugsað sér a.m.k. 20% af
brúttóverðmæti aflans, eða nál-
ægt 2.60 kr. á kílóið.
■ Sigurjón Jóhannsson tók sig vel út með „píunum“ í
Þjóðleikhúsinu, eftir að verðlaunaafhendingin hafði farið
fram. Mynd: Jóhanna Ólafsdóttir
- Sjá nánar viðtal við verðlaunahafann bls.4